Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Skráningareglur ökutækja

Þjónustuaðili:

Síðast uppfært:

1. október 2025 -

Gildir frá: 01.06.2024. Skráningareglur ökutækja eru fyrir fagaðila sem sinna skráningum í umboði Samgöngustofu eða tilkynna breytingar í ökutækjaskrá samkvæmt lögum.

    Umskráningar (eigenda og umráðenda)

    Eftirtaldir aðilar geta gert samning um að vinna í umboði Samgöngustofu hvað varðar móttöku tilkynninga um skráningu eigenda og umráðenda (kallaðir þjónustuaðilar):

    • Faggiltar skoðunarstofur ökutækja

    Efni kaflans

    Eigendaskipti

    Eigendur geta tilkynnt um eigendaskipti að ökutæki. Eigendaskipti ber að tilkynna með stafrænum hætti á heimasíðu Samgöngustofu. Einnig er í boði að að tilkynna á eyðublaði og framvísa því hjá þjónustuaðila.

    Móttaka stafrænna tilkynninga

    Samgöngustofa hefur það að markmiði að gera þjónustu sína stafræna og hvetur því til þess að viðskiptavinum sé leiðbeint um þann kost að ganga frá eigendaskiptum þannig.

    Frá 1. maí 2025 er miðað við að nánast allar tilkynningar um eigendaskipti fari í starfænt ferli. Ef ekki er unnt að nota stafrænt ferli þarf tilkynning að berast Samgöngustofu beint, ekki í gegnum þjónustuaðila. Með breytingunni mun afgreiðsla eigendaskipta á pappír taka allt að 7 daga frá því að þau berast Samgöngustofu. Þetta er gert til að tryggja áreiðanleika gagna enn betur en áður. Þjónustuaðilar eru beðnir um að beina viðskiptavinum á stafræn eigendaskipti á heimasíðu Samgöngustofu.

    Móttaka tilkynninga á pappír

    Til 30. apríl 2025 gildir eftirfarandi ferli.

    Ökutæki þarf að vera á skrá (ekki á forskrá og ekki afskráð) til að hægt sé að tilkynna eigendaskipti. Öktutækið má ekki vera með einkamerki (nema því sé afsalað og nýr eigandi sæki um réttinn í leiðinni) og má ekki vera með eigendaskiptalás eða breytingalása sem banna eigendaskipti.

    Við móttöku tilkynninga er gengið úr skugga um að tilkynning sé í frumriti, hún sé rétt útfyllt og öll skilyrði skráningar uppfyllt. Ef tilkynning er ekki skráningarhæf (t.d. rangar upplýsingar, óljósar eða yfirstrikanir) skal vísa henni frá og leiðbeina viðskiptavini um það sem lagfæra þarf.

    • Aldur: Ef kaupandi, seljandi eða meðeigandi er undir 18 ára aldri þarf staðfestingu sýslumanns (yfirlögráðanda) fyrir kaupum/sölu.

    • Dagsetning kaupsamnings: Skal koma fram en ef hana vantar (eða er síðar en móttökudagur tilkynningar eða úndan síðasta kaupdegi) notast Samgöngustofa við móttökudag tilkynningar.

    • Heimilisfang: Ef heimilisfang á tilkynningu er ekki það sama og í þjóðskrá er heimilisfang í þjóðskrá notað. Æskilegt er að skrá heimilisfang á tilkynningu.

    • Fastanúmer ökutækis: Seljandi skal vera skráður eigandi að ökutækinu.

    • Tegund ökutækis: Upplýsingar um tegund má vanta en ef tegund er tilgreind verður hún að passa við tilgreint fastanúmer.

    • Álestur akstursmælis: Skal skráður á tilkynningu fyrir hreinorkubifreiðir og tengiltvinnbifreiðir.

    • Netfang/símanúmer: Æskilegt er að kaupandi og seljandi skrái netfang og/eða símanúmer á tilkynninguna.

    • Undirritanir: Seljandi, kaupandi og meðeigandi skulu sjálfir undirrita tilkynningu. Undirritanir verða að vera í samræmi við nöfn aðila nema undirritað sé fyrir hönd aðila samkvæmt umboði (sjá neðar). Prókúruhafi og framkvæmdastjóri geta undirritað fyrir hönd fyrirtækis án sérstaks umboðs. Sé undirritun ógreinileg eða hafi verið strikað yfir hana áskilur Samgöngustofa sér rétt til að hafna tilkynningu um eigendaskipti.

    • Vitundarvottar: Skal vera a.m.k einn vitundarvottur sem vottar undirskrift kaupanda og annar vitundarvottur sem vottar undirskrift seljanda. Sami aðili má votta undirskriftir beggja (má skrifa á miðja tilkynningu). Vottur skal rita kennitölu sína og vera orðinn 18 ára. Kaupandi og seljandi mega ekki votta eigin undirskriftir eða hvors annars.

    • Vátryggingafélag: Tryggingafélag skal vera tilgreint fyrir öll tryggingaskyld ökutæki (öll nema eftirvagna) sem eru skráð í umferð (ekki afskráð eða með skráningarmerki í innlögn eða eru skráð úr umferð með miða).

    • Opinber gjöld: Gjaldastaða ökutækis skal vera á núlli (á við um öll gjöld sem lögð eru á ökutæki). Vakin er athygli á að tilkynning verður ekki skráð hjá Samgöngustofu ef gjöld hafa verið lögð á í millitíðinni (frá móttöku hjá þjónustuaðila).

    • Álestur ökumælis (þungaskattur): Skal hafa farið fram innan 7 daga frá móttöku eigendaskipta og verða álögð gjöld vegna álestursins að vera greidd til að Samgöngustofa skrái eigendaskiptin.

    • Staða akstursmælis skal tilkynnt á ökutækjum sem falla undir greiðslu kílómetragjalds.

    Í umboði skal koma fram efni umboðs, fastanúmer ökutækis, nafn og kennitala umboðsmanns, undirritun umbjóðanda, tveir vitundarvottar, staður og dagsetning. Umbjóðandi, umboðsmaður og vitundarvottar skulu allir að vera orðnir 18 ára.

    Skráningarhæfar tilkynningar eru mótteknar, greiðslustimplaðar af þjónustuaðila og sendar daglega til Samgöngustofu. Réttaráhrif eigendaskipta miðast við skráningardag þ.e. eigendaskipti taka gildi þegar þau eru skráð hjá Samgöngustofu. Mótteknar tilkynningar sem berast Samgöngustofu til skráningar eru færðar í tímaröð. Fyrir rekjanleika skráir Samgöngustofa þjónustuaðila og móttökudag tilkynninga (eftir greiðslustimpli) í ökutækjaskrá.

    Nánari skýringar á nokkrum atriðum sem hamla móttöku tilkynningar:

    • Einkamerki: Ef ökutæki er með einkamerki í eigu seljanda er óheimilt að móttaka tilkynningu. Úrbætur felast í að skila inn einkamerkjum til geymslu og afhenda almenn skráningarmerki á ökutækið áður en heimilt er að skrá eigendaskiptin. Einnig getur rétthafi afsalað sér einkamerkinu og heimilað notkun á því aftur (fyrir liggi umsókn nýs eiganda að einkamerkinu og rétthafagjald greitt).

    • Eigendaskiptalás á kennitölu (kennitölulás): Ef kaupandi eða seljandi er skráður með eigendaskiptalás á kennitölu, "Eigendaskráning bönnuð", er óheimilt að móttaka tilkynningu.

    • Breytingalás á ökutæki: Ef ökutæki er með "1 Eigandaskiptalás" er óheimilt að móttaka tilkynningu. Ef ökutæki er með "2 Lögreglulás", "4 Gjaldþrotalás" eða "9 Lögveð v/vörugjalds" skal hafna móttöku tilkynningar og benda aðilum á að hafa samband við lögreglu, skiptastjóra eða Skattinn (tollgæslu).

    • Ökutækjaleiga: Sé bifreið skráð í notkunarflokkinn "Ökutækjaleiga" verður notkunarflokknum breytt í "Almenn notkun" við skráningu eigendaskiptanna hjá Samgöngustofu séu skilyrði um skoðun uppfyllt (skal hafa farið í reglubundna skoðun fyrr á almanaksárinu).

    Gjaldtaka

    • Gjald Samgöngustofu fyrir skráningu eigendaskipta er eigendaskiptagjald 2.455 krónur og einnig skal innheimta umferðaröryggisgjald 500 krónur.

    • Samgöngustofa tekur ekki gjald fyrir skráningu meðeigenda við nýskráningu og eigendaskipti.

    Tölvuvinnsla

    Allar tilkynningar á pappírsformi ber að senda til Samgöngustofu daglega.