Grunnþjónusta fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd
Virkni
Ýmis virkni er í boði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Reglulega er boðið upp á C1 og C2 íslenskunámskeið sem og enskunámskeið.
Lögð er áhersla á jafningjafræðslu þar sem umsækjendur eru valdefldir og hvattir til að nýta hæfileika sína til góðs innan hópsins. Með þeim hætti hafa orðið til mörg skemmtileg námskeið sem hafa verið vel sótt. Má þar meðal arnnars nefna:
Sjálfshjálparnámskeið
Skáknámskeið
Karatenámskeið
Zumbanámskeið
Yoganámskeið
Bachata og salsanámskeið
íslenskar kvikmyndir með enskum texta
Bænastundir
Tungumálakaffi
Námskeið í myndlist
Lögð er áhersla á að rjúfa einangrun þjónustuþega með því að kanna reglulega aðstæður þeirra og hvetja þau til að sækja þá dagskrá sem er í boði. Dagskráin er fjölbreytt og eitthvað ætti að vera í boði fyrir alla sem hafa áhuga á að sækja virkni. Stundum þarf fólk aðstoð og hvatningu við að koma sér af stað og leggur stofnunin sitt á vogaskálarnar við að veita hana.
Ýmis konar önnur starfsemi stendur umsækjendum um alþjóðlega vernd til boða sem stofnunin vekur athygli á til umsækjenda. Má þar nefna Hjálparstarf kirkjunnar, GETU - Hjálparsamtök, Hjálpræðisherinn, ýmis önnur trúfélög.
Ef þú hefur áhuga á því að bjóða upp á virkni í samstarfi við Vinnumálastofnun eða ert með starf sem þú vilt vekja athygli á hvetjum við þig til að hafa samband við Guðmund Ingvar Jónsson, verkefnastjóra virkniúrræða fyrir UAV á netfangið gudmundur.i.jonsson@vmst.is og við skoðum hvort hægt sé að finna samstarfsflöt.
Virkni fyrir börn á leikskólaaldri
Vinnumálastofnun er í samstarfi við Memmm- Opna leikskólann. Leikskólinn býður foreldrum/forsjáraðilum og ungum börnum þeirra í fjölskylduvæna aðstöðu til að leika saman og hitta aðrar fjölskyldur. Reglulega er boðið upp á fræðslu um málefni uppeldis og barna. Opni leikskólinn er gjaldfrjáls fyrir alla sem hann sækja.
Opni leikskólinn er góður vettvangur fyrir foreldra/forsjáraðila að hitta aðra í svipaðri stöðu sem og gott tækifæri fyrir börnin að hitta jafnaldra sína og efla félagsþroska á þessum mótandi aldri.
Í Opna leikskólanum er haft að leiðarljósi að skapa uppbyggilega og valdeflandi þjónustu fyrir fjölskyldur með ung börn.
Nánari upplýsingar um Memmm – opna leikskólann má finna á memmm.is
Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun