Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Grunnþjónusta fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd

Velferð

Velferðarteymi er starfrækt fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Í teyminu eru hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafi, sérfræðingur og aðstoðarmaður.

Heilbrigðisþjónusta

Samkvæmt reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Með því að hafa hjúkrunarfræðinga að störfum hjá stofnuninni eykst grunnheilbrigðisþjónusta fyrir umsækjendur til muna og álag á almennt heilbrigðiskerfi minnkar töluvert. Umsækjendur geta óskað eftir símtali eða viðtali við hjúkrunarfræðinga ef áhyggjur af heilsu vakna og er þeim þá leiðbeint áfram innan heilbrigðiskerfisins ef þörf er á frekari skoðun. Hægt er að veita ráðleggingar og aðstoð vegna minni kvilla og eru slík tilvik stór hluti af þeim tilfellum þegar einstaklingar hafa samband við teymið.

Sérstaklega er haldið utan um þungaðar konur og nýfædd börn ásamt öðrum viðkvæmum hópum og fólki með fötlun. Mál umsækjenda um alþjóðlega vernd í heilbrigðiskerfinu eru oft snúin vegna kennitöluleysis þeirra og með því að hafa hjúkrunarfræðinga að störfum næst yfirsýn yfir heilbrigðismál umsækjenda sem er nauðsynleg fyrir heilsu þeirra og velferð.


Félagsráðgjöf

Félagsráðgjafi í velferðarteymi sinnir margvíslegum verkefnum er varðar umsækjendur um alþjóðlega vernd. Hann er tengiliður við grunn- og framhaldsskóla og er einnig tengiliður við leikskóla þegar það á við. Einstaklingar geta sótt viðtöl við félagsráðgjafa án ástæðu ef það er eitthvað sem þarf að ræða eða skoða betur. Félagsráðgjafi er einnig tengiliður við aðra sem koma að þjónustu í málaflokknum, t.d. barnavernd, félagsþjónustu, lögreglu, sveitarfélög, Bjarkarhlíð og fleira.


Fyrsta skimun

Sérfræðingur í velferðarteymi sinnir fyrstu skimun (vulnerability check) fyrir nýkomna til landsins. Allir umsækjendur fara í þessa skimun við fyrsta tækifæri þar sem spurt er út í hvort viðkomandi tilheyri viðkvæmum hópi að einhverju leyti sem ekki hefur komið fram strax við komu til landsins. Í þessu viðtali koma oft fram mikilvægir þættir er varða velferð einstaklinga og hægt að veita markvissari og einstaklingsmiða þjónustu í kjölfarið til að minnka líkur á stærri vanda síðar meir. Sérfræðingur sér einnig um að finna einstaklinga sem sækja ekki virkni og rjúfa félagslega einangrun ásamt því að aðstoða einstaklinga við alls konar mál sem reynast þeim erfið.

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun