Fara beint í efnið

Greiðsla innflutningsgjalda fyrir innfluttar vörur

Innflutningsgjöld ráðast af tollflokkun vörunnar, uppruna hennar og tollverði. Í Tollalínunni sérð þú nákvæmar upplýsingar um hvernig gjöldin voru reiknuð fyrir hverja sendingu.

Ef þú telur að villa hafi verið gerð getur þú óskað eftir leiðréttingu innflutningsgjalda.

Hver ber ábyrgð á greiðslu innflutningsgjalda?

  • Innflytjandi

  • Póstflytjandi

  • Viðtakandi

Greiðslur

Leiðir til að borga:

  1. Beint til tollmiðlara - reikningur kemur frá tollmiðlara

  2. Beint til skattsins með millifærslu eða staðgreiðslu:

    • Kennitala: 540269-6029

    • Bankaupplýsingar: 0101-24-85002

    • Sendið skýringar á greiðslum á netfangið 85002@skatturinn.is

  3. Tollkrít - greiðslufrestur aðflutningsgjalda

Nánari upplýsingar um Tollkrít.

Yfirlit yfir greiðslur

Þú getur skoðað yfirlit yfir skuldfærð gjöld, greiðslur og aðrar upplýsingar um sendingar á Tollalínunni.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn