Tollkrít – greiðslufrestur aðflutningsgjalda
Félög og einstaklingar sem eru með opið virðisaukaskattsnúmer hafa heimild til greiðslufrests á innflutningsgjöldum (tollkrít).
Hvernig virkar tollkrít?
Í stað þess að staðgreiða virðisaukaskatt, toll og önnur aðflutningsgjöld strax við tollafgreiðslu, er gjöldunum safnað saman og þau greidd síðar innan tiltekins greiðslufrests, yfirleitt á tveggja mánaða fresti.
Uppgjörstímabil
Uppgjörstímabil | Gjalddagi |
|---|---|
Janúar og febrúar | 15. mars |
Mars og apríl | 15. maí |
Maí og júní | 15. júlí |
Júlí og ágúst | 15. september |
September og október | 15. nóvember |
Nóvember og Desember | 15. janúar næsta árs |
Yfirlit og skuldfærslur
Hægt er nálgast hreyfingar og skuldfærslur vegna tollkrítar undir fjármál á Mínum síðum. Einnig er að hægt að nálgast yfirlit allar þær tollskýrslur sem hafa verið skuldfærðar á félag inni á tollalínu félagsins.
Til þess að skuldfæra á tollkrítina þarf að óska eftir því við þann sem sér um tollskýrslugerð félagsins og láta skuldfæra á tollkrít félagsins.
Vanskil
Tollkrít félags og einstaklinga lokar sjálfkrafa ef aðflutningsgjöld eru komin fram yfir eindaga. Ef innflytjandi greiðir upp alla skuldina er hægt að láta opna skuldfærsluheimild með því að senda kvittun fyrir greiðslu og beiðni á upplysingar@skatturinn.is. Að öðrum kosti opnar hún daginn eftir greiðslu sjálfkrafa.
Lokuð tollkrít
Helstu ástæður þess að tollkrít félags er lokuð eru.
Ef fyrri tímabil greiðslufrest aðflutningsgjalda eru komin fram yfir eindaga.
Ef áfengiskrít félagsins er komin yfir gjalddaga.
Ef gjaldflokkurinn Úrvinnslugjald í tolli er komið yfir einddaga.
Skuldfærsluheimild félagsins hefur verið lokað handvirkt skv. beiðni félags.
Þjónustuaðili
Skatturinn