Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Geislun í umhverfinu

Á þessari síðu

Gammageislun

Geislavirk hrörnun er ferlið þegar óstöðugar geislavirkar frumeindir (atóm) losa sig við orku til þess að leita í stöðugra ástand. Flest geislavirk hrörnun er í formi beta eða alfa hrörnunar ásamt litlu hlutfalli sjálfkrafa klofnunar. Oftast fylgir geislavirkri hrörnun gammageislun. Gammageislar og röntgengeislar hafa stystu bylgjulengd og hæsta orku rafsegulgeislunar (aðrar gerðir rafsegulgeislunar eru útfjólublátt ljós, sýnilegt ljós, innrautt ljós, örbylgjur og útvarpsgeislun).

Hægt er að nota orku gammageisla frá geislavirkri hrörnun til að bera kennsl á gerð frumeinda í efninu. Þessi tækni er þekkt sem gamma litrófsmæling og er notuð við vöktun á geislun í umhverfinu.

Umhverfisvöktun

Sýni úr mjólk, lambakjöti, fisk eða sjó er sett á skynjara, sem nemur gammageislun frá sýninu. Dæmigert umhverfissýni á Íslandi er mælt í 1 til 3 daga til að minnka tölfræðilega óvissu í mælingunni. Fjöldi gammageisla og orka þeirra er mæld og myndar gammageislunaróf, með orku á x-ásnum og styrk (fjölda talninga) á y-ásnum.

Orka gammageislunarinnar gerir okkur kleift að ákvarða hvaða geislavirk efni eru í sýninu og styrkurinn gerir okkur kleift að ákvarða hversu mikið af tilteknu geislavirku efni er til staðar.

Magn geislavirkra efna í íslenskum umhverfissýnum er almennt mjög lítið og styrkur manngerðra geislavirka efna eru oft undir greiningarmörkum í ákveðnum tegundum sýna, t.d. fiski og þangi.

Mælingar á gammageislun á Íslandi

Auk umhverfisvöktunar vaktar Geislavarnir ríkisins heildargammageislun á fjórum stöðum á Íslandi. Mælingarnar eru samstarfsverkefni Geislavarna ríkisins og Veðurstofu Íslands.

Geislamælar hafa verið settir upp á fjórum sjálfvirkum mælistöðvum Veðurstofunnar. Þá er að finna:

Línurit yfir styrk geislunarinnar á öllum gammastöðvunum má finna á vef Veðurstofu Íslands.

Gögnin eru aðgengileg erlendum samstarfsaðilum og það er hægt að skoða gammamælingar í Evrópu á sjálfvirku evrópukorti EURDEP.

Þjónustuaðili

Geislavarnir ríkisins

Tengt efni

Geislavarnir ríkisins

Hafðu samband

Sími: 440 8200

Netfang: gr@gr.is

Afgreiðslan er opin

Alla virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Heim­il­is­fang

Rauðarárstígur 10

105 Reykjavík

Kennitala: 540286-1169