Gagnreynd heilsa er eining innan embættis landlæknis og samstarfsverkefni sem er ætlað að stuðla að samræmdri og gagnreyndri heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Það er gert með þróun, utanumhaldi, reglulegi uppfærslu og innleiðingu klínískra leiðbeininga, gæðastaðla og gæðavísa ásamt staðfærslu að íslenskum aðstæðum.
Markmið verkefnisins er að:
Styðja við gagnreynda ákvarðanatöku
Draga úr óæskilegum breytileika í þjónustu
Bæta árangur og öryggi sjúklinga
Styðja við skilvirka nýtingu fjármuna og annarra auðlinda heilbrigðiskerfisins
Gagnreynd heilsa er langtímaverkefni sem miðar að því að byggja upp sjálfbæra umgjörð um klínískar leiðbeiningar, gæðastaðla og gæðavísa til nota í heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Markmiðið er að þróa ferli til forgangsröðunar nýrra viðfangsefna og styðja við uppbyggingu fleiri verkefna á komandi árum.