Flugleiðsaga
Flugleiðsöguþjónusta er samheiti yfir flugleiðsöguþjónustu og rekstrarstjórnun flugumferðar, sem felur í sér margs konar þjónustu sem veitt er loftförum og notendum loftrýmis.
Markmið flugleiðsögudeildar Samgöngustofu
Samgöngustofa sinnir eftirliti með með fyrirtækjum sem hafa starfsleyfi til flugleiðsöguþjónustu og veitir starfsleyfi til flugleiðsöguþjónustu.
Samgöngustofa er ábyrg fyrir því að tryggja viðeigandi eftirlit, einkum að því er varðar öruggan og skilvirkan rekstur veitenda flugleiðsöguþjónustu innan þess loftrýmis sem er á ábyrgð íslenska ríkisins. Eftirlitið fer fram í formi úttekta (úttektir, eftirlit og prófanir) sem starfsfólk framkvæmir.
Samgöngustofa skal tilnefna þjónustuveitanda, í samráði við innanríkisráðuneytið, sem veittur er einkaréttur á veitingu flugumferðarþjónustu, innan tiltekinna loftrýmisumdæma að því er varðar loftrými á ábyrgð íslenska ríkisins.
Samgöngustofu er heimilt að tilnefna þjónustuveitanda, í samráði við innviðaráðuneytið, sem hefur einkarétt á því að láta í té öll veðurfræðileg gögn eða hluta af þeim í öllu eða hluta af loftrýminu sem er á ábyrgð íslenska ríkisins, að teknu tilliti til öryggisráðstafana.
Samgöngustofa skal koma á fót samráðsvettvangi með hagsmunaaðilum til að tryggja viðeigandi þátttöku þeirra í innleiðingu reglna er varða samevrópska loftrýmið. Slíkir hagsmunaaðilar geta verið fulltrúar veitenda flugleiðsöguþjónustu, loftrýmisnotenda, flugvalla, framleiðsluiðnaðar og fagmenntaðs starfsfólks veitenda flugleiðsöguþjónustu.
Samgöngustofa tryggir að veiting flugleiðsöguþjónustu sé í samræmi við íslensk lög og reglugerðir, ákvæði Evrópusambandsins, kröfur og ráðlagðar starfsvenjur Alþjóðaflugmálastofnunarinnar.
Helstu verkefni flugleiðsögudeildar:
Votta og gefa út starfsleyfi fyrir veitendur flugleiðsöguþjónustu.
Hafa eftirlit með veitendum flugleiðsöguþjónustu.
Samþykkja öryggistengdar breytingar hjá veitendum flugleiðsöguþjónustu.
Sjá um samræmingu og uppfærslu reglugerða um flugleiðsögu og rekstrarstjórnun flugumferðar.
Móta, koma á og viðhalda gæðakerfi vegna eftirlits í flugleiðsögu.
Sjá um erlend samskipti vegna flugleiðsögu og svara fyrir úttektir erlendra stofnana, t.d. ICAO, ECAC, EASA og ESA.
Veita sérfræðiþjónustu til þeirra sem þess óska varðandi loftrýmismál og flugleiðsögu, þ.á.m. í tengslum við túlkun á reglugerðum og ákvörðunum Evrópusambandsins og fleira.
Lög og reglur
Flugleiðsöguþjónusta er veitt samkvæmt íslenskum lögum, reglugerðum og ráðlögðum starfsvenjum sem eru í fullu samræmi við annars vegar ákvæði Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO) og hins vegar Evrópureglugerðir sem koma m.a. frá Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA).
Sjá nánar um lög og reglur
Þjónustuaðili
Samgöngustofa