Þú sækir um endurbótalán á lánavef HMS. Þar skráirðu inn upplýsingar um þig, viðgerðirnar og hvers konar lán þú vilt taka.
Fylgigögn
Álagningarseðill síðustu skattaskýrslu.
Ef lánið er viðbótarlán við lán hjá annarri lánastofnun þarf staðfestingu á upphæð og lánskjörum grunnlánsins.
Áætlun eða staðfesting á framkvæmdakostnaði.
Í framhaldi af umsókninni er þér beint í greiðslumat hjá CreditInfo til að kanna lánshæfi.
Þú færð staðfestingarpóst þegar umsóknin hefur verið send inn. Ráðgjafi mun hafa samband innan 3 virkra daga. Ef beðið er um viðbótargögn er mikilvægt að senda þau innan frestsins sem er gefinn, annars fellur umsókn úr gildi.
Þú getur alltaf fylgst með stöðu umsóknar á Mínum síðum HMS.
Endurbótum ólokið
Lán er ekki greitt út fyrr en framkvæmdum er lokið. Þó er hægt að fá fyrirframgreitt gegn bankaábyrgð.
Önnur fylgigögn
Með umsókninni þarf að fylgja staðfesting á áætluðum framkvæmdakostnaði.
Innan 12 mánaða frá lokum framkvæmda þarf að skila inn staðfestingu á framkvæmdakostnaði og verklokum (undirritað af viðurkenndum aðila) ásamt afriti af reikningum fyrir vörukaup og aðkeypta vinnu. Best er að senda þetta með tölvupósti á þann ráðgjafa sem þú hefur verið í sambandi við.
Lán samþykkt
Þegar staðfesting á framkvæmdakostnaði og verklokum hefur borist er lán sent í skjalagerð. Það tekur vanalega 1 til 3 virka daga.
Þegar lánaskjölin eru tilbúin getur þú sótt þau á afgreiðslutíma til HMS í Borgartúni 21 og farið með í þinglýsingu.
Þegar lánaskjölum hefur verið þinglýst getur þú sent eða farið með lánaskjölin aftur til HMS.
Endurbótum lokið
Önnur fylgigögn
Með umsókninni þarf að fylgja staðfesting á framkvæmdakostnaði.
Lán samþykkt
Um leið og lánsumsókn er samþykkt er lán sent í skjalagerð. Það tekur vanalega 1–3 virka daga.
Þegar lánaskjölin eru tilbúin getur þú sótt þau á afgreiðslutíma til HMS í Borgartúni 21 og farið með í þinglýsingu.
Þegar kaupsamningi hefur verið þinglýst getur þú sent eða farið með lánaskjölin aftur til HMS.
Útgreiðsla
Fyrsti vaxtadagur er 5 dögum frá kaupdegi láns. Fyrsta afborgun af láni er fyrsta dag annars mánaðar eftir það.
Dæmi: Fyrsti vaxtadagur er 10. janúar. Fyrsta afborgun af láni er 1. mars.
Þú getur fylgst með stöðu láns og greitt inn á það á Mínum síðum HMS.
Láni synjað
Ef lánsumsókn er synjað færðu tölvupóst með formlegu ákvörðunarbréfi með ástæðum synjunar. Ef einhver gögn vantaði eða forsendur hafa breyst getur þú sótt um endurupptöku og veitt nýjar upplýsingar.
Ef þú ert ósammála niðurstöðunni getur þú kært hana til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun