Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Endurbótalán

Umsókn um endurbótalán

Lánakjör

  • Grunnlán með vaxtaendurskoðun er allt að 50% af gildandi fasteignamati/verðmati.

  • Hægt er að fá viðbótarlán með vaxtaendurskoðun upp í 80% af gildandi fasteignamati/verðmati.

  • Einnig er hægt að fá eitt lán með föstum vöxtum út lánstímann að hámarki 80% af gildandi fasteignamati/verðmati.

Sjá vaxtatöflu lána

Óverðtryggð lán

Óverðtryggð lán eru með hærri mánaðarlegar greiðslur en verðtryggð. Óverðtryggð lán hækka ekki með verðbólgu þannig að eignamyndun er hraðari.

Fastir vextir í 3 ár í senn

  • Lánstími að 25 árum.

  • Grunnlán fyrir allt að 50%.

  • Viðbótarlán fyrir 51–80%.

  • Viðbótarlán við aðra lánastofnun fyrir 50–80%.

Verðtryggð lán

Verðtryggð lán eru með lægri mánaðarlegar greiðslur en óverðtryggð. Þau eru tengd verðbólgu þannig að höfuðstóllinn getur hækkað í upphafi. Það gerir eignamyndun hægari.

Fastir vextir í 5 ár í senn

  • Lánstími að 40 árum.

  • Grunnlán fyrir allt að 50%.

  • Viðbótarlán fyrir 51–80%.

  • Viðbótarlán við aðra lánastofnun fyrir 50–80%.

Fastir vextir út lánstímann

  • Lánstími að 35 árum

  • Grunnlán fyrir allt að 80%

Umsókn um endurbótalán