Beiðni um afrit af skilnaðarskjölum
Til þess að óska eftir afriti af skilnaðarskjölum má senda beiðni hér.
Mikilvægt er að beiðnin sé sem ítarlegust og innihaldi m.a. upplýsingar um:
Nafn beiðanda
Kennitölu
Heimilisfang
Netfang
Póstnúmer
Sveitarfélag
Símanúmer
Til að flýta fyrir afgreiðslu beiðnar er einnig mikilvægt að fram komi skilmerkileg lýsing á því hvaða gögn er verið að biðja um, s.s. um tegund skjals (t.d. lögskilnaðarleyfi), hvenær skjölin voru útgefin eða þau lögð inn hjá sýslumanni (ártal eða dagsetning) og hvar þau voru gefin út eða lögð inn (hjá hvaða sýslumanni).
Vinsamlegast athugið að ef þau gögn sem beðið er um voru gefin út á árinu 1992 eða fyrr þarf að hafa samband við Þjóðsskjalasafnið vegna þeirra. Nánari upplýsingar hér
Þjónustuaðili
Sýslumenn