Fara beint í efnið

Barnamenningarsjóður Íslands

Umsýsla og skýrsluskil

Samningur, greiðsla og skýrsla

Gerðir eru samningar um styrkveitingar. Ef styrkur er 2 m.kr eða lægri er hann greiddur að fullu í fyrstu greiðslu en ef hann er hærri en 2 m.kr er fyrsta greiðsla 80%. Öll verkefni þurfa að skila lokaskýrslu. 20% lokagreiðsla styrkja sem eru hærri en 2 m.kr er greidd eftir að lokaskýrsla hefur verið samþykkt.

  • Lokaskýrslu skal skila innan þriggja mánaða eftir að verkefni lýkur samkvæmt skilmálum..

  • Heimilt er að krefja styrkþega um uppgjör staðfest af löggiltum endurskoðanda.

  • Ef að verkefni nær yfir fleiri en eitt almanaksár er kallað eftir áfangaskýrslu verkefnis og/eða ef sótt er um styrk úr sjóðnum að nýju áður en lokaskýrsla fyrri styrks hefur borist. Sama skýrsluform er notað fyrir áfangskýrslu og lokaskýrslu en fjárhagsyfirlit þarf ekki að fylgja með henni.

Skýrsluform

Breyting á innskráningu

Innskráningarleið Íslands.is hefur breyst (frá október 2024) og íslykill lagður niður. Þurfi stofnun/fyrirtæki að veita starfsmanni umboð er Rannís skráð undir fullu heiti þegar umboð er veitt: Rannsóknamiðstöð Íslands - Rannís. Sjá nánar um umboð og aðgangsstýringu á Íslands.is.