Mannauðstorg ríkisins: Vinnutími og viðvera
Orlofslaun og orlofsfé
Útborgun orlofslauna helst í hendur við orlofstökuna. Orlofslaunin taka mið af mánaðarlaunum starfsmanns fyrir dagvinnu og eru greidd með reglubundnum hætti meðan á orlofstöku stendur
Starfsfólk fær greitt orlofsfé, 13,04%, af yfirvinnu- og álagsgreiðslum. Orlofsfé er greitt jafnóðum inn á orlofsreikning og kemur til útborgunar um miðjan maí ár hvert.
Orlofsfé af fastri yfirvinnu
Mikilvægt er að taka fram í samningum um fasta yfirvinnu hvort orlofsfé sé greitt af þeirri yfirvinnu eða ekki.
Hér er dæmi um orðalag þar sem greidd er föst yfirvinna allt árið en orlofsfé ekki greitt: „Fastar yfirvinnustundir eru greiddar alla mánuði ársins, einnig þann tíma sem starfsmaður er í orlofi í samræmi við áunninn og gjaldfallinn orlofsrétt. Með þessum hætti eru staðin full skil á orlofslaunum af föstu yfirvinnustundunum og því ekki greitt orlofsfé af þeim.“
Orlofsfé af biðlaunum
Orlofsfé reiknast ekki á biðlaun.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?
Mannauðstorg ríkisins
Ertu með ábendingu eða spurningu?