Fara beint í efnið

Yfirtaka lána

Ef þú ert að kaupa íbúð sem er með áhvílandi láni frá HMS hefur þú möguleika á að taka yfir lánið. Ef kjörin eru góð og liðið er á lánstímann gæti þetta verið hagstæður kostur. Engin lántökugjöld eru við yfirtöku á láni.

Þú getur tekið yfir hluta sambúðaraðila við skilnað. Einnig ef þú ert að kaupa þig inn í húsnæði sem önnur manneskja á fyrir, til dæmis með nýjum maka.

Skilyrði

  • Ef þú ert að taka nýtt lán á sama tíma og þú yfirtekur lán má samanlögð upphæð lánanna ekki vera hærri en 44 milljónir krónur.

  • Íbúðin má ekki vera til útleigu.

  • Það má aðeins eiga eitt húsnæði með áhvílandi láni frá HMS.

  • Hægt er að yfirtaka öll eldri lán HMS nema lán frá Byggingarsjóði verkamanna.

  • Það má aðeins taka yfir hlutdeildarlán við skilnað, þá að hluta.

  • Standast greiðslubyrðarhlutfall Seðlabanka Íslands.

Sækja um

Umsókn um yfirtöku

Fylgigögn

Með umsókninni þarf að fylgja:

  • Undirritað kauptilboð og söluyfirlit eða afsal (eins og á við).

  • Staðfesting á eigin fé, til dæmis með bankayfirliti.

  • Álagningarseðill síðustu skattaskýrslu.

  • Ef um skilnað er að ræða þarf eignaskiptasamning.

  • Ef um sambúðarslit er að ræða þarf fjárskiptasamning.

Ráðgjafi HMS mun hafa samband fljótlega með tölvupósti, staðfesta umsókn og senda upplýsingar um greiðslumat.

Lán samþykkt

  1. Um leið og umsóknin um yfirtöku er samþykkt er lán sent í skjalagerð.

  2. Þegar skjöl eru tilbúin getur þú nálgast þau á afgreiðslutíma til HMS í Borgartúni 21. Einnig er hægt að óska eftir að fá skjölin send í pósti ef þú býrð á landsbyggðinni.

  3. Þegar yfirtökuskjölum (og kaupsamningi, ef við á) hefur verið þinglýst þarftu að koma með lánaskjölin aftur til HMS.

Kostnaður

  • Yfirtaka á láni: 15.000 krónur

  • Þinglýsingarkostnaður hjá sýslumanni: 3.800 krónur.

  • Greiðslumat: 8.400 krónur fyrir einstakling og 16.700 krónur fyrir sambúðarfólk.

Yfirtöku á láni synjað

Verði umsókn um yfirtöku á láni synjað verður ákvörðunin birt í stafrænu pósthólfi þínu á island.is. Ef ný gögn eða upplýsingar liggja fyrir getur þú óskað eftir endurupptöku málsins.

Teljir þú ákvörðunina ranga getur þú kært hana til úrskurðarnefndar velferðarmála.