Vörur sem krefjast innflutningsleyfis
Ef þú vilt flytja inn eftirfarandi vörur þarftu leyfi viðkomandi ábyrgðarstofnunar.
Vöruflokkur | Ábyrgðarstofnun | Sjá nánar |
|---|---|---|
Fjarskiptabúnaður (þráðlausir símar, sendur/móttakari, fjarstýrt leiktæki) | Fjarskiptastofa | |
Skotvopn, skotfæri og sprengifæri | Ríkislögreglustjóri | |
Lifandi dýr | Matvælastofnun (MAST) | |
Blóm, plöntur og jarðvegur | Matvælastofnun (MAST) | |
Matvæli og dýraafurðir | Matvælastofnun (MAST) | |
Áfengi (í atvinnuskyni) | Sýslumenn (umsókn) / Ríkislögreglustjóri (heimild) | |
Ávana- og fíkniefni og eftirlitsskyld efni | Lyfjastofnun | |
Lyf (í atvinnuskyni) | Lyfjastofnun (umsögn) / Heilbrigðisráðherra (leyfi) | |
Vefir og frumur (frá ríkjum utan EES) | Lyfjastofnun | |
CITES-tegundir (dýr og plöntur í útrýmingarhættu, t.d. fílabeinsmuni, hvalsbein, rostungstennur) | Umhverfisstofnun | |
Framandi lífverur | Umhverfisstofnun |
Tollgæslan hefur yfirumsjón með eftirliti við innflutning og innheimtu tolla og gjalda, óháð því hvaða stofnun gefur út leyfið.
Nánari upplýsingar um hvað má ferðast með eða panta til Íslands.
Þjónustuaðili
Skatturinn