Fara beint í efnið

Umsókn um lækkun eða niðurfellingu vörugjalds á innflutt ökutæki

Umsókn um lækkun eða fellt niður vörugjald

Þú getur sótt um lækkun eða niðurfellingu vörugjalds af sumum ökutækjum. Sækja þarf um lækkun eða niðurfellingu áður en ökutæki er nýskráð, eða í beinum tengslum við nýskráningu.

Tollmiðlari aðstoðar við umsóknarferlið.

Ökutæki sem falla undir undanþágu

  • Sérsmíðaðar bifreiðar til akstursíþrótta.

  • Bifreiðar fyrir starfsemi björgunarsveita.

  • Sérútbúnar bifreiðar fyrir fatlað fólk.

  • Sérútbúin ökutæki fyrir fólksflutninga.

Nánar um hvaða ökutæki eru undanþegin vörugjaldi.

Skilyrði um notkun

Niðurfellingu vörugjalda fylgja skilyrði um notkun ökutækisins í tiltekinn tíma. Ef breytingar verða á notkun á tímabilinu þarf að endurgreiða vörugjöldin að hluta.

Eignarleigufyrirtæki

Ef skráður eigandi er eignarleigufyrirtæki þarf það einnig að undirrita yfirlýsingu um að það sé meðvitað um skilyrðin og lögveðið. Hyggist fyrirtækið nýta sér niðurfellingu vörugjalds þarf það að staðfesta að það muni greiða hluta gjaldanna ef ökutækið er tekið til annarra nota en upphaflega var ákveðið.

Umsóknarferlið

Eigandi ökutækis, getur sótt um lækkun eða niðurfellingu á vörugjöldum við innflutning bíls, áður en ökutækið er skráð á númer eða um leið og það er gert.

  1. Fylla þarf út umsókn (TS-V04). Ef ökutækið er innflutt, aðstoðar tollmiðlari við umsóknarferlið.

  2. Fylgigögn með umsókn. Veljið það sem á við:

    • Atvinnuleyfi til leigubílaaksturs.

    • Starfsleyfi ökuskóla og löggilding sem ökukennari.

    • Yfirlýsing frá samtökum um akstursíþróttir.

    • Staðfesting landssamtaka björgunarsveita.

    • Umsögn Tryggingarstofnunar varðandi þörf á sérútbúinni bifreið.

    • Staðfesting Samgöngustofu varðandi sérútbúinn bíl fyrir ferðaþjónustu.

  3. Ef ökutækið er á kaupleigu þarf eignarleigufyrirtækið að undirrita yfirlýsingu og samþykkja að greiða eftirstöðvar vörugjalda ef notkun ökutækisins breytist.

  4. Senda á umsóknina og fylgigögn á netfangið: skjalabeidni@skatturinn.is. Ef sótt er um eftirgjöf vörugjalds við innflutning skal senda umsóknina meðfylgjandi tollskýrslu í tollakerfi.

Ekki er hægt að sækja um niðurfellingu eftir að ökutækið er skráð.

Breyting á notkun eða sala ökutækis

Áður en þú selur ökutækið eða breytir notkun þess þarft þú að gera upp ógreitt vörugjald. Upphæðin sem þú greiðir fer eftir því hve lengi ökutækið hefur verið í þeirri notkun sem lægra gjald var veitt fyrir.

Ekki er hægt að skrá eigendaskipti fyrr en eftirstöðvar vörugjalds hefur verið gert upp.

Lög og reglur

Umsókn um lækkun eða fellt niður vörugjald

Þjónustuaðili

Skatt­urinn