Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

Útreikningur vörugjalds af innfluttum ökutækjum

Vörugjöld eru lögð á skráningarskyld ökutæki sem eru innflutt eða framleidd á Íslandi. Það gildi jafnt um ný og notuð ökutæki.

Engin vörugjöld eru á ökutækjum sem ganga eingöngu fyrir rafmagni, metani eða vetni.

Útreikningur

Vörugjöld eru reiknuð út frá eftirfarandi:

  • Tollverði ökutækisins, sem samanstendur af innkaupsverði, flutningsgjaldi og flutningstryggingu. Vörugjöld geta verið á bilinu 10-70% af tollverði.

  • Losun koltvísýrings (CO₂ gildi) ökutækisins.

Ef CO₂ gildi er ekki skráð í skráningarskírteini ökutækisins eru vörugjöld reiknuð út frá þyngd.

Til að reikna vörugjald þarf að hafa upplýsingar um útblástur sem eru að finna á skráningarskírteini og gerðarviðurkenningu ökutækis.

Sjá reiknivél innflutningsgjalda.

Ökutæki undanþegin vörugjaldi að hluta eða öllu leiti

Hægt er að sækja um lækkun vörugjalds við innflutning ökutækis.

Reiknireglur vörugjalds á ökutæki