Tollfrjáls verslun áhafna flugvéla og skipa
Rafræn tilkynning og skráning vara
Þegar þú kemur til Íslands sem hluti af áhöfn skips eða flugvélar þarft þú að gera grein fyrir varningi sem þú hefur meðferðis.
Rafræn tilkynning
Hægt er að skrá fyrir komu til landsins.
Skráðu þig á rautthlid.is með rafrænum skilríkjum
Veldu Áhafnir og skráðu hvort þú hyggst nýta tollfrelsi í næstu ferð.
Ef þú ert með vörur yfir mörkum eða vörur sem þarfnast sérstakrar yfirlýsingar þarftu að gera grein fyrir þeim við komu til landsins.
Hægt er að hætta við skráningu ef tíminn á komu flugvélar er ekki liðinn. Ef þú hættir við verslun í fríhöfn eftir rafræn skil er hægt að breyta skráningu.
Ekki með rafræn skilríki
Þau sem er ekki með rafræn skilríki geta fyllt út eyðublað.
Þjónustuaðili
Skatturinn