Fara beint í efnið

Tollfrjáls verslun áhafna flugvéla og skipa

Rautt hlið - Tilkynna og greiða tollinn fyrir komuna til landsins

Ef þú ert í áhöfn skips eða flugvélar og ert að koma til Íslands getur þú komið með ákveðið magn af vörum tollfrjálst. Magnið fer eftir hversu lengi þú varst í ferð.

Þegar þú kemur til landsins þarf þú að gera grein fyrir varningi sem þú hefur meðferðis.

Vörur sem eru háðar innflutningstakmörkunum eða innfluttningsbanni þarf alltaf að framvísa tollgæslu, óháð magni.

Hámark tollfrjálsra vara eftir vörutegundum

Greiða þarf innflutningsgjöld af vörum umfram hámörk. Hægt er að ganga frá greiðslu tollskyldra vara fyrir komu til Íslands

Eftirlit við komu til landsins

Tollgæslu er heimilt að taka farangur farþega og áhafnar til skoðunar. Eigandi á rétt á að vera viðstaddur skoðunina og getur krafist þess að farangurinn verði innsiglaður þar til skoðun fer fram. Tollgæsla gefur út kvittun ef eigandi óskar þess.

Áhafnir búsettar erlendis

Skipverjar og flugverkar sem eru búsettir erlendis mega koma með tollfrjálsan ferðabúnað og farangur sem er hæfilegur miðað við tilgang ferðar og dvalartíma, að því tilskildu að hann sé fluttur út landi á ný við brottför.

Rautt hlið - Tilkynna og greiða tollinn fyrir komuna til landsins

Þjónustuaðili

Skatt­urinn