Fara beint í efnið

Tilkynning um alvarlegt óvænt atvik í velferðarþjónustu

Tilkynna um alvarlegt óvænt atvik

Allir sem veita þjónustu sem lýtur eftirliti Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála skulu skrá óvænt atvik. Ef um alvarleg óvænt atvik er að ræða eru þjónustuveitendur skyldugir til að tilkynna þau til stofnunarinnar tafarlaust. Með alvarlegu óvæntu atviki er átt við atvik sem hefur eða hefði geta valdið notanda þjónustu varanlegu líkamlegu eða andlegu tjóni eða orðið honum að bana.

Þegar stofnuninni berst tilkynning um alvarlegt óvænt atvik hefur hún rannsókn á atvikinu. Markmið rannsóknarinnar er að leita skýringa sem geta nýst til að koma í veg fyrir að sambærileg atvik eigi sér stað. Stofnunin lýkur umfjöllun um atvikið með skýrslu.

Ef rannsókn leiðir fram vitneskju eða vekur grun um refsiverða háttsemi beinir stofnunin ábendingu um slíkt til lögreglu.

Ef atvik tengist veitingu heilbrigðisþjónustu upplýsir stofnunin embætti landlæknis um atvikið.

Lög og reglur

Tilkynningar um alvarleg óvænt atvik eru samkvæmt 12. grein laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Tilkynna um alvarlegt óvænt atvik

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100

Hafðu samband

Sími: 540 0040

gev@gev.is

Heimilisfang

Suðurlandsbraut 24, 5. hæð

108 Reykjavík

kt. 611221 0100