Sjóður
Rannsóknasjóður
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Áætlað næst í maí 2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Rannsóknir
Tegund
Fjármögnun
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Nýdoktorsstyrkur Rannsóknasjóðs
Styrkirnir eru ætlaðir til uppbyggingar starfsferils ungra vísindamanna innan rannsóknasamfélagsins.
Sjóður
Rannsóknasjóður
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Áætlað næst í maí 2026
Styrkjaflokkun
Innlent, Rannsóknir
Tegund
Fjármögnun
Nýdoktorsstyrkur Rannsóknasjóðs
Lokað fyrir umsóknir / Áætlað næst í maí 2026
Styrkurinn er persónubundinn og staða nýdoktors er 100% starf.
Hægt er að sækja um laun og ferðakostnað nýdoktorsins, ásamt rekstrarkostnaði og birtingarkostnaði.
Það styrkir umsókn ef sótt er um nýdoktorsstöðu við aðra stofnun en veitti doktorsgráðu.
Hverjir geta sótt um?
Umsækjendur þurfa að hafa lokið doktorsgráðu í mesta lagi fimm árum áður en umsóknarfrestur rennur út.
Umsækjandi um nýdoktorsstyrk getur ekki verið verkefnisstjóri eða aðalrannsakandi umsóknar í öðrum styrkflokki.
Hvernig er sótt um?
Sótt er um í gegnum umsóknarkerfi Rannís.
Umsóknir skulu vera á ensku.
Gerð er krafa um meðmælabréf frá tveimur sérfræðingum sem ekki eru þátttakendur í umsókninni.
Gerð er krafa um yfirlýsingu frá gestgjafastofnun um að umsækjandi muni hafa starfs- og rannsóknaraðstöðu þar á styrktímabilinu.
Afrit af prófskírteini skal fylgja umsókn eða skilað í síðasta lagi 1. desember eftir umsóknarfrest.
Skila þarf með verkefnalýsingu á sniðmáti verkefnastyrks og öðrum fylgigögnum samkvæmt handbók.
Umsóknir skulu vera á ensku.
Svör við spurningum
Spurningar og fyrirspurnir skal senda á rannsoknasjodur@rannis.is
Nánari upplýsingar er að finna í Handbók Rannsóknasjóðs
Fyrirspurnir sendist á rannsoknasjodur@rannis.is
Þjónustuaðili