Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Vestmannaeyjabær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Byggingarmál, Mannvirki, Vestmannaeyjar
Undirritunardagur
3. apríl 2025
Útgáfudagur
23. apríl 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 439/2025
3. apríl 2025
GJALDSKRÁ
Vestmannaeyjabæjar fyrir skipulags- og byggingarmál og tengd þjónustugjöld.
1. gr.
Gjöld.
Fyrir útgáfu leyfa og vottorða, úttektir, yfirferð gagna, auglýsingar, kynningar og aðra umsýslu og þjónustu sem Vestmannaeyjabær veitir vegna byggingar- og leyfisskyldra framkvæmda, deiliskipulags og breytinga á skipulagsáætlunum, innheimtir Vestmannaeyjabær í umboði bæjarstjórnar gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
2. gr.
Byggingarleyfisgjald.
Byggingarleyfisgjald miðast við eina yfirferð aðal- og séruppdrátta, útmælingar, hæðarsetningar, stöðuúttekt og öryggis-/lokaúttekt. Úttektir eru samkvæmt ákvæðum byggingarreglugerðar nr. 112/2012. Byggingarleyfisgjald samkvæmt gjaldskrá þessari skal greiða við veitingu byggingarleyfis. Falli byggingarleyfi niður eða er afturkallað áður en framkvæmdir hefjast endurgreiðist byggingarleyfisgjald ekki.
| 2.1 | Byggingarleyfisgjald | Kr. |
| Einbýlishús | 257.190 | |
| Par-, rað-, tvíbýlis- og keðjuhús, pr. íbúð | 196.675 | |
| Fjölbýlishús, pr. íbúð | 151.288 | |
| Atvinnu-, þjónustu- og stofnanahúsnæði, að 500 m² | 302.577 | |
| Atvinnu-, þjónustu- og stofnanahúsnæði, frá 500-1.000 m² | 453.865 | |
| Atvinnu-, þjónustu- og stofnanahúsnæði, frá 1.000-2.000 m² | 786.700 | |
| Atvinnu-, þjónustu- og stofnanahúsnæði, yfir 2.000 m² | 1.210.308 | |
| Önnur hús, viðbyggingar og bílgeymslur, að 50 m² | 105.902 | |
| Önnur hús, viðbyggingar og bílgeymslur, yfir 50 m² | 151.288 | |
| Lágmarksgjald vegna móttöku byggingarleyfisumsóknar | 31.258 | |
| Gjöld vegna aðkeyptrar yfirferðar séruppdrátta | skv. reikningi | |
| Hver endurskoðun hönnunarganga | skv. tímagjaldi byggingarfulltrúa |
3. gr. Skipulagsgjald.
Skipulagsgjald byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir breytingu á aðal- og/eða deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins. Umhverfis- og skipulagsráð getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið. Gjöld skv. 3 gr. eru ekki endurkræf þótt umsókn sé dregin til baka eða synjað.
| 3.1 | Skipulagsgjald - aðalskipulag | Kr. |
| Breytingar á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga | aðkeypt vinna skv. reikningi |
|
| Óveruleg breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga | aðkeypt vinna skv. reikningi |
|
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga | 151.288 | |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga | 105.902 | |
| 3.2 | Skipulagsgjald - deiliskipulag | Kr. |
| Deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga | aðkeypt vinna skv. reikningi | |
| Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga | aðkeypt vinna skv. reikningi | |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga | 105.902 | |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga | 151.288 | |
| Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga | 105.902 | |
| Grenndarkynning vegna breytinga á deiliskipulagi | 45.387 | |
| Grenndarkynning vegna byggingarleyfisumsókna | 45.387 |
4. gr. Framkvæmdaleyfisgjald.
Framkvæmdaleyfisgjald skv. 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
| 4.1 | Framkvæmdaleyfisgjald | Kr. |
| Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 | 453.865 | |
| Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir | 121.031 | |
| Eftirlitsgjald | skv. tímagjaldi skipulagsfulltrúa |
5. gr. Þjónustugjöld.
Greiða skal fyrir þjónustu og leyfisveitingar sem umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar veitir sem hér segir:
| 5.1 | Þjónustugjöld | Kr. |
| Afgreiðslugjald erinda | 30.258 | |
| Staðfestingargjald vegna lóðarúthlutunar | 90.773 | |
| Breyting á lóðarleigusamningi að beiðni lóðarhafa | 45.387 | |
| Gjald vegna útsetningar lóðarmarka að beiðni lóðarhafa | 21.180 | |
| Úttekt byggingarfulltrúa vegna veitinga- og gistileyfa | 21.180 | |
| Aukavottorð um byggingarstig og stöðuúttekt | 21.180 | |
| Gjald fyrir önnur útköll, s.s. vettvangsskoðun og mælingar | 21.180 | |
| Tímagjald byggingarfulltrúa | 21.180 | |
| Tímagjald skipulagsfulltrúa | 21.180 | |
| Stofnun lóða eða fasteigna | skv. gjaldskrá HMS | |
| Þinglýsing lóðarleigusamninga | skv. gjaldskrá sýslumanna | |
| Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga | aðkeypt vinna skv. reikningi | |
| Umsýslugjald vegna skráningu lóðar eða breytinga á lóð | aðkeypt vinna skv. reikningi |
6. gr. Stöðuleyfi og afnot af bæjarlandi.
| 6.1 | Stöðuleyfi | Kr. |
| Stöðuleyfi gáma, báta, hjólhýsa o.fl. veitt til allt að 12 mánaða | 30.258 | |
| Stöðuleyfi söluvagna og söluskúra, sumarleyfi maí-september | 151.288 | |
| Stöðuleyfi söluvagna og söluskúra, pr. mánuð | 45.387 | |
| Stöðuleyfi söluvagna og söluskúra, pr. viku | 21.180 | |
| 6.2 | Leiga af bæjarlandi | Kr. |
| Geymsluúrræði, 20 feta gámur á lóð sveitarfélagsins, pr. mánuð | 30.258 | |
| Geymsluúrræði, 40 feta gámur á lóð sveitarfélagsins, pr. mánuð | 45.387 | |
| Leiga af bæjarlandi með lokun á einni akrein, pr. dag | 15.129 | |
| Leiga af bæjarlandi með lokun á götu, pr. dag | 21.180 | |
| Leiga á bæjarlandi pr. fermetra á dag í 1-7 daga | 120 | |
| Leiga á bæjarlandi pr. fermetra á dag í 8-90 daga | 60 | |
| Leiga á bæjarlandi pr. fermetra 3 mánuði eða lengur | skv. samkomulagi |
7. gr. Gjalddagi og lögveð.
Gjalddagi byggingarleyfisgjalds skv. 2. gr. er við útgáfu byggingarleyfis, sem tekur ekki gildi fyrr en byggingarleyfisgjald hefur verið greitt. Gjalddagi þjónustu- og leyfisgjalda er við afhendingu gagna eða veitingu leyfis.
Gjöldum samkvæmt gjaldskránni fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
8. gr. Gildistaka og verðbreytingar.
Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í janúar 2025, 121,2 stig, sem breytist 1. janúar ár hvert, til samræmis við breytingar á vísitölunni.
Gjaldskrá þessi sem sett er með heimild í lögum um mannvirki nr. 160/2010 og skipulagslögum nr. 123/2010 öðlast gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.
Gjaldskrá sama efnis nr. 175/2024 fellur úr gildi við gildistöku þessarar gjaldskrár.
Samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði, 27. janúar 2025. Samþykkt í bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar, 19. febrúar 2025.
Vestmannaeyjum, 3. apríl 2025.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 23. apríl 2025