Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

31. mars 2026

Útgáfudagur

8. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 332/2026

31. mars 2026

REGLUR

um markaði fyrir sýndareignir.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um nánari framkvæmd laga nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937 (hér eftir MiCA), hvað varðar:

  1. Stöðluð eyðublöð, snið og sniðmát, sbr. 11. mgr. 6. gr. MiCA.
  2. Efni, aðferðafræði og framsetningu upplýsinga um sjálfbærnivísa, sbr. 12. mgr. 6. gr. MiCA.
  3. Ferlið við samþykki á hvítbók um sýndareign, sbr. 8. mgr. 17. gr. MiCA.
  4. Nánari tilgreiningu upplýsinga varðandi umsókn um starfsleyfi, sbr. 6. mgr. 18. gr. MiCA.
  5. Stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur um þær upplýsingar sem skulu vera í umsókn um starfsleyfi, sbr. 7. mgr. 18. gr. MiCA.
  6. Stöðluð eyðublöð, snið og sniðmát vegna hvítbókar um sýndareign, sbr. 10. mgr. 19. gr. MiCA.
  7. Efni, aðferðafræði og framsetningu upplýsinga um sjálfbærnivísa, sbr. 11. mgr. 19. gr. MiCA.
  8. Aðferðir við að meta fjölda og virði viðskipta, sbr. 6. mgr. 22. gr. MiCA.
  9. Stöðluð eyðublöð, snið og sniðmát vegna skýrslugjafar og upplýsingagjafar, sbr. 7. mgr. 22. gr. MiCA.
  10. Kröfur, sniðmát og verklagsreglur fyrir meðferð kvartana, sbr. 5. mgr. 31. gr. MiCA.
  11. Stefnur og verklagsreglur varðandi ráðstafanir vegna hagsmunaárekstra ásamt upplýsingum og aðferðum í tengslum við upplýsingagjöf, sbr. 5. mgr. 32. gr. MiCA.
  12. Ferli, tímaramma og viðmið í tengslum við kröfu um hærri eiginfjárgrunn og lágmarkskröfur um álagspróf, sbr. 6. mgr. 35. gr. MiCA.
  13. Lausafjárkröfur, sbr. 4. mgr. 36. gr. MiCA.
  14. Fjármálagerninga sem teljast auðseljanlegir og bera hverfandi áhættu, sbr. 5. mgr. 38. gr. MiCA.
  15. Efni nauðsynlegra upplýsinga til að framkvæma mat á fyrirhuguðum kaupum í útgefendum eignatengdra tóka, sbr. 4. mgr. 42. gr. MiCA.
  16. Fyrirkomulag stjórnarhátta, stefnu og verklagsreglur við bæði lausafjárstýringu og lausafjárkröfur og ferli og tímaramma varðandi aðlögun í tengslum við fjárhæð eiginfjárgrunns, sbr. 7. mgr. 45. gr. MiCA.
  17. Stöðluð eyðublöð, snið og sniðmát vegna hvítbókar um sýndareign, sbr. 10. mgr. 51. gr. MiCA.
  18. Efni, aðferðarfræði og framsetningu upplýsinga að því er varðar sjálfbærnivísa, sbr. 15. mgr. 51. gr. MiCA.
  19. Nánari tilgreiningu upplýsinga skv. 7. mgr. 60. gr. MiCA, sbr. 13. mgr. 60. gr. MiCA.
  20. Stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur að því er varðar tilkynningu skv. 7. mgr. 60. gr. MiCA, sbr. 14. mgr. 60. gr. MiCA.
  21. Nánari tilgreiningu upplýsinga skv. 2. og 3. mgr. 62. gr. MiCA varðandi umsókn um starfsleyfi, sbr. 5. mgr. 62. gr. MiCA.
  22. Stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur um þær upplýsingar sem skulu vera með umsókn um starfsleyfi, sbr. 6. mgr. 62. gr. MiCA.
  23. Efni, aðferðafræði og framsetningu upplýsinga að því er varðar sjálfbærnivísa, sbr. 6. mgr. 66. gr. MiCA.
  24. Ráðstafanir til að tryggja samfellu og reglufestu í framkvæmd þjónustu á sviði sýndareigna og skrár sem halda skal um alla þjónustu, starfsemi, fyrirmæli og viðskipti, sbr. 10. mgr. 68. gr. MiCA.
  25. Kröfur, sniðmát og verklagsreglur fyrir meðferð kvartana, sbr. 5. mgr. 71. gr. MiCA.
  26. Stefnur og verklagsreglur varðandi ráðstafanir vegna hagsmunaárekstra ásamt upplýsingagjöf og aðferðum, sbr. 5. mgr. 72. gr. MiCA.
  27. Hvernig leggja eigi fram gögn um gagnsæi og innihald og snið tilboðabóka, sbr. 16. mgr. 76. gr. MiCA.
  28. Efni nauðsynlegra upplýsinga til að framkvæma mat á fyrirhuguðum kaupum á þjónustuveitendum sýndareigna, sbr. 4. mgr. 84. gr. MiCA.
  29. Opinbera birtingu innherjaupplýsinga og frestun á opinberri birtingu innherjaupplýsinga, sbr. 4. mgr. 88. gr. MiCA.
  30. Fyrirkomulag, kerfi, verklag og sniðmát til að fyrirbyggja og greina markaðssvik og samráðsferli milli lögbærra yfirvalda þegar um er að ræða markaðssvik yfir landamæri, sbr. 2. mgr. 92. gr. MiCA.
  31. Upplýsingaskipti á milli lögbærra yfirvalda, sbr. 10. mgr. 95. gr. MiCA.
  32. Stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklag við samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda, sbr. 11. mgr. 95. gr. MiCA.
  33. Stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklag við samstarf og upplýsingaskipti, sbr. 3. mgr. 96. gr. MiCA.
  34. Sniðmát fyrir samstarfssamninga við lögbær yfirvöld þriðju landa, sbr. 3. mgr. 107. gr. MiCA.
  35. Gögn sem nauðsynleg eru til flokkunar í skrá varðandi hvítbækur um sýndareignir, útgefendur eignatengdra tóka og rafeyristóka og þjónustuveitendur sýndareigna, sbr. 8. mgr. 109. gr. MiCA.
  36. Mat á mikilvægi útgefenda eignatengdra tóka og rafeyristóka, hvernig skuli telja eignatengda tóka eða rafeyristóka notaða í miklum mæli og framkvæmdarlega þætti í störfum samstarfshóps eftirlitsaðila, sbr. 8. mgr. 119. gr. MiCA.

2. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB):

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2545 frá 24. september 2024 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur fyrir samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213/2025 frá 19. september 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3 frá 15. janúar 2026, bls. 49–51. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 137-154.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2494 frá 24. september 2024 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur fyrir samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda og Evrópsku bankaeftirlitsstofnunarinnar og Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 38/2026 frá 6. febrúar 2026, sem birt er í fylgiskjali 1 með reglum þessum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 389-400.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2861 frá 12. nóvember 2024 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilegar leiðir til viðeigandi opinberrar birtingar innherjaupplýsinga og til að fresta opinberri birtingu upplýsinganna, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 300/2025 frá 5. desember 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 342-347.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2902 frá 20. nóvember 2024 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar skýrslugjöf um eignatengda tóka og rafeyristóka tilgreinda í gjaldmiðli sem ekki er opinber gjaldmiðill aðildarríkis, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213/2025 frá 19. september 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3 frá 15. janúar 2026, bls. 49–51. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 155-193.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2984 frá 29. nóvember 2024 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar eyðublöð, snið og sniðmát fyrir hvítbækur um sýndareignir, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213/2025 frá 19. september 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3 frá 15. janúar 2026, bls. 49–51. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 194-242.
  6. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/292 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem koma á sniðmáti fyrir samstarfssamninga milli lögbærra yfirvalda og eftirlitsyfirvalda þriðju landa, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2025 frá 19. september 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3. frá 15. janúar 2026, bls. 52-53. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 243-247.
  7. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/293 frá 30. september 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru kröfur, sniðmát og verklag við meðferð kvartana er varða eignatengda tóka, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2025 frá 19. september 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3. frá 15. janúar 2026, bls. 52-53. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 248-257.
  8. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/294 frá 1. október 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru kröfur, sniðmát og verklag við meðferð kvartana er varða þjónustuveitendur sýndareigna, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2025 frá 19. september 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3. frá 15. janúar 2026, bls. 52-53. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 258-266.
  9. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/296 frá 31. október 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreint er ferlið við samþykki á hvítbók um sýndareign, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 37/2026 frá 6. febrúar 2026, sem birt er í fylgiskjali 2 með reglum þessum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 377-381.
  10. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/297 frá 31. október 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreind eru skilyrðin fyrir stofnsetningu og starfsemi ráðgefandi samstarfshópa eftirlitsaðila, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 37/2026 frá 6. febrúar 2026, sem birt er í fylgiskjali 2 með reglum þessum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 382-388.
  11. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/298 frá 31. október 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreind er aðferðafræði við að meta fjölda og virði viðskipta sem tengjast notkun eignatengdra tóka og rafeyristóka sem eru tilgreindir í gjaldmiðli sem ekki er opinber gjaldmiðill aðildarríkis sem skiptimiðils, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2025 frá 19. september 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3. frá 15. janúar 2026, bls. 52-53. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 267-271.
  12. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/299 frá 31. október 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um samfellu og reglufestu í framkvæmd þjónustu á sviði sýndareigna, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2025 frá 19. september 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3. frá 15. janúar 2026, bls. 52-53. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 272-277.
  13. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/300 frá 10. október 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um upplýsingar sem lögbær yfirvöld skulu skiptast á, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2025 frá 11. júlí 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 6. nóvember 2025, bls. 39-40. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 36-44.
  14. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/303 frá 31. október 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru upplýsingar sem tilteknir aðilar á fjármálamarkaði skulu láta fylgja með í tilkynningu um fyrirætlun sína að bjóða þjónustu á sviði sýndareigna, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2025 frá 19. september 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3. frá 15. janúar 2026, bls. 52-53. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 278-288.
  15. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/304 frá 31. október 2024 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur fyrir tilkynningu tiltekinna aðila á fjármálamarkaði um fyrirætlun sína að bjóða þjónustu á sviði sýndareigna, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2025 frá 11. júlí 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 6. nóvember 2025, bls. 39-40. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 96-101.
  16. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/305 frá 31. október 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru upplýsingar sem skulu vera í umsókn um starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2025 frá 11. júlí 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 6. nóvember 2025, bls. 39-40. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 45-61.
  17. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/306 frá 31. október 2024 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur í tengslum við þær upplýsingar sem skulu vera í umsókn um starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 245/2025 frá 24. október 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9 frá 12. febrúar 2026, bls. 33-34. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 335-341.
  18. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/413 frá 18. desember 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreint er ítarlegt innihald nauðsynlegra upplýsinga til að meta fyrirhuguð kaup útgefanda á virkum eignarhlut í útgefanda eignatengdra tóka, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2025 frá 11. júlí 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 6. nóvember 2025, bls. 39-40. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 62-78.
  19. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/414 frá 18. desember 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreint er ítarlegt innihald nauðsynlegra upplýsinga til að meta fyrirhuguð kaup á virkum eignarhlut í þjónustuveitanda sýndareigna, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2025 frá 11. júlí 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 6. nóvember 2025, bls. 39-40. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 79-95.
  20. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/415 frá 13. desember 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru leiðréttingar á kröfum um eiginfjárgrunn og lágmarksþættir áætlana um álagspróf útgefenda eignatengdra tóka eða rafeyristóka, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2025 frá 11. júlí 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 6. nóvember 2025, bls. 41-42. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 102-109.
  21. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/416 frá 29. nóvember 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreint er innihald og snið tilboðaskráa fyrir þjónustuveitendur sýndareigna sem starfrækja viðskiptavettvang fyrir sýndareignir, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2025 frá 13. júní 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61 frá 2. október 2025, bls. 42-43. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 1-22.
  22. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/417 frá 28. nóvember 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreint er hvernig þjónustuveitendur sýndareigna sem starfrækja viðskiptavettvang fyrir sýndareignir eiga að setja fram gögn í þágu gagnsæis, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 138/2025 frá 13. júní 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 6. nóvember 2025, bls. 41-42. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 23-35.
  23. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/418 frá 16. desember 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindir eru lágmarksþættir fyrirkomulags stjórnarhátta varðandi starfskjarastefnu útgefenda mikilvægra eignatengdra tóka eða rafeyristóka, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2025 frá 11. júlí 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 6. nóvember 2025, bls. 41-42. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 110-117.
  24. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/419 frá 16. desember 2024 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina ferlið og tímarammann sem útgefandi eignatengdra tóka eða rafeyristóka hefur til að aðlaga fjárhæð eiginfjárgrunns síns, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 179/2025 frá 11. júlí 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69 frá 6. nóvember 2025, bls. 41-42. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 118-120.
  25. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/885 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um viðeigandi fyrirkomulag, kerfi og verklag við að koma í veg fyrir, greina og tilkynna markaðssvik, sniðmátin sem nota skal til að tilkynna grun um markaðssvik og samráðsferli milli lögbærra yfirvalda um greiningu og viðurlög við markaðssvikum þegar um er að ræða markaðssvik yfir landamæri. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 401-413.

  26. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1125 frá 5. júní 2025 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina upplýsingarnar í umsókn um starfsleyfi til að bjóða eignatengda tóka út á almennum markaði og óska eftir töku þeirra til viðskipta. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 348-361.
  27. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1126 frá 5. júní 2025 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar að koma á stöðluðum eyðublöðum, sniðmátum og verklagsreglum í tengslum við þær upplýsingar sem skulu vera í umsókn um starfsleyfi til að bjóða eignatengda tóka út á almennum markaði og óska eftir töku þeirra til viðskipta. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 414-416.
  28. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1140 frá 27. febrúar 2025 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru þær skrár sem halda skal um alla þjónustu, starfsemi, fyrirmæli og viðskipti á sviði sýndareigna sem ráðist er í, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 245/2025 frá 24. október 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9 frá 12. febrúar 2026, bls. 33-34. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 289-324.
  29. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1141 frá 27. febrúar 2025 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru kröfur varðandi stefnur og verklagsreglur um hagsmunaárekstra fyrir útgefendur eignatengdra tóka, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 245/2025 frá 24. október 2025, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9 frá 12. febrúar 2026, bls. 33-34. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 325-334.
  30. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1142 frá 27. febrúar 2025 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru kröfur varðandi stefnur og verklagsreglur um hagsmunaárekstra fyrir þjónustuveitenda sýndareigna og nánari upplýsingar og aðferðir í tengslum við efni þeirrar upplýsingagjafar um hagsmunaárekstra. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 362-371.
  31. Framseld reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1264 frá 27. júní 2025 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindir eru lágmarksþættir stefnu og verklagsreglna við lausafjárstýringu fyrir tiltekna útgefendur eignatengdra tóka og rafeyristóka. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 19 frá 26. mars 2026, bls. 372-376.

3. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 2. mgr. 15. gr. laga nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir, taka gildi þegar í stað.

Seðlabanka Íslands, 31. mars 2026.

Björk Sigurgísladóttir

varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.

Guðmundur Óli Blöndal

forstöðumaður.

B deild — Útgáfudagur: 8. apríl 2026

Tengd mál