Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

8. apríl 2021

Útgáfudagur

26. apríl 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 443/2021

8. apríl 2021

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 48/2012 um sameiginlegar reglur um flugrekstur og flugþjónustu innan Evrópska efnahagssvæðisins.

1. gr.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætast stafliðir f og g sem orðast svo:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2114 frá 16. desember 2020 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1008/2008 að því er varðar tímabundna framlengingu á sérstökum neyðarráðstöfunum til að bregðast við afleiðingum COVID-19 heimsfaraldursins með tilliti til vals á veitanda flugafgreiðsluþjónustu, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2021 frá 5. febrúar 2021, eins hún birtist í EES-viðbæti nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 664-666.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2115 frá 16. desember 2020 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1008/2008 að því er varðar tímabundna framlengingu á sérstökum neyðarráðstöfunum til að bregðast við afleiðingum COVID-19 heimsfaraldursins með tilliti til flugrekstrarleyfa, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 66/2021 frá 5. febrúar 2021, eins hún birtist í EES-viðbæti nr. 23, frá 31. mars 2021, bls. 667-669.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 57. gr. b. og 85. gr. a., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. apríl 2021.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2021

Tengd mál