Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
3. júlí 2015
Útgáfudagur
20. júlí 2015
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 665/2015
3. júlí 2015
REGLUGERÐ
um breytingar á reglugerð nr. 770/2010 um flugreglur.
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir fyrir flugumferð íslenskra og erlendra loftfara innan þess loftrýmis sem Ísland hefur yfirráð yfir. Reglugerðin tekur einnig til flugs íslenskra loftfara erlendis nema öðruvísi sé mælt fyrir um í lögum, reglugerðum og/eða verklagsreglum þeirra ríkja sem loftfarið flýgur yfir.
Ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 923/2012 gilda um loftrými Alþjóðaflugmálastofnunarinnar innan Evrópusvæðis (ICAO EUR) og Afríku- og Indlandshafssvæðis (ICAO AFI) þar sem aðildarríki innan Evrópska efnahagssvæðisins eru ábyrg fyrir því að veita flugumferðarþjónustu.
2. gr.
Hvar sem orðið „Flugmálastjórn" eða orðin „Flugmálastjórn Íslands", í hvers konar beygingarfalli, koma fyrir í reglugerðinni eða viðaukum við hana, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Samgöngustofa.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.:
- 1. mgr. orðast svo: Með reglugerð þessari öðlast gildi viðauki 2 um flugreglur (Rules of the Air) við Chicago-samninginn um alþjóðlegt almenningsflug (Convention on International Civil Aviation), ásamt breytingum samanber 44. breytingu frá 25. febrúar 2013 (Amendment 44 to the International Standards, Rules of the Air).
-
Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Með reglugerð þessari öðlast einnig gildi reglugerð (ESB) nr. 923/2012 frá 26. september 2012 um sameiginlegar flugreglur og rekstrarákvæði varðandi þjónustu og verklagsreglur fyrir flugleiðsögu og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1035/2011 og reglugerðum (EB) nr. 1265/2007, (EB) nr. 1794/2006, (EB) nr. 730/2006, (EB) nr. 1033/2006 og (ESB) nr. 255/2010, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 232 frá 13. desember 2013, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4 frá 23. janúar 2014, bls. 422.
4. gr.
Við I. kafla viðauka I bætast eftirfarandi skilgreiningar á viðeigandi stað í stafrófsröð:
Að greina og forðast (Detect and avoid): Geta til að sjá, skynja eða greina umferðarhættu eða aðra hættu og gera viðeigandi ráðstafanir.
Blindaðflugsaðgerðir
(Instrument
approach
operations):
Aðflug
og
lending
með
stjórntækjum
fyrir
leiðsögu
sem
byggist
á
verklagi
við
blindaðflug.
Tveimur
aðferðum
er
beitt
til
að
framkvæma
blindaðflugsaðgerðir:
a)
tvívíð
(2D)
blindaðflugsaðgerð
þar
sem
einungis
er
beitt
stefnubeinandi
leiðsögn
og
b)
þrívíð
(3D)
blindaðflugsaðgerð
þar
sem
bæði
láréttri
og
lóðréttri
leiðsögn
er
beitt.
Aths.
Lárétt
og
lóðrétt
leiðsögn
vísar
til
leiðsagnar
sem
veitt
er
ýmist
með:
a)
jarðföstum
leiðsögubúnaði
eða
b)
tölvugerðum
leiðsögugögnum.
Starfræksla í sjónlínu (Visual line-of-sight (VLOS) Operation): Starfræksla þar sem fjarflugmaður eða umsjónarmaður fjarstýrðs loftfars heldur beinu sjónrænu sambandi við fjarstýrða loftfarið án hjálparbúnaðar.
Skilgreining orðsins Blindaðflug (Instrument approach procedure) í I. kafla viðauka I verður svohljóðandi og færist á réttan stað í stafrófsröð:
Verklag við blindaðflug (Instrument approach procedure, IAP): Fyrirfram ákveðin flugbrögð loftfars, gerð með aðstoð flugmælitækja, með tilgreindu bili frá hindrunum frá upphafsstað aðflugs eða, þar sem við á, frá byrjun skilgreindrar komuleiðar að þeim stað þar sem hægt er að ljúka lendingu. Ef lendingu verður ekki lokið, þá að stað þar sem sérstök greinimörk gilda um biðflug eða hindranir fyrir loftför á flugi.
Verklagsreglur um blindaðflug eru flokkaðar sem hér segir:
Verklag
við
grunnaðflug
(Non-precision
approach
(NPA)
procedure):
Verklag
við
blindaðflug
sem
er
hannað
fyrir
tvívíða
(2D)
blindaðflugsaðgerð
af
A-gerð.
Verklag
við
aðflug
með
leiðsögu
í
lóðréttum
fleti
(Approach
procedure
with
vertical
guidance
(APV)):
Verklag
við
hæfisbundna
leiðsögu
(PBN)
í
blindaðflugi
sem
er
hannað
fyrir
þrívíða
(3D)
blindaðflugsaðgerð
af
A-gerð.
Verklag
við
nákvæmnisaðflug
(Precision
approach
(PA)
procedure):
Verklag
við
blindaðflug
sem
byggir
á
leiðsögukerfum
(ILS,
MLS,
GLS
og
SBAS
flokki
I)
hannað
fyrir
þrívíðar
blindaðflugsaðgerðir
af
A
eða
B
gerð.
Aths. Vísað er í ICAO viðauka 6 fyrir skilgreiningar á A- og B-gerðum blindaðflugsaðgerða.
5. gr.
Í stað orðsins „þrjár" í c-lið greinar 3.6.2.2 í III. kafla viðauka I kemur: tvær.
6. gr. Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi 44. breyting frá 25. febrúar 2013 á viðauka 2 við Chicago-samninginn um alþjóðlegt almenningsflug (Convention on International Civil Aviation).
Með reglugerð þessari öðlast einnig gildi reglugerð (ESB) nr. 923/2012 frá 26. september 2012 um sameiginlegar flugreglur og rekstrarákvæði varðandi þjónustu og verklagsreglur fyrir flugleiðsögu og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1035/2011 og reglugerðum (EB) nr. 1265/2007, (EB) nr. 1794/2006, (EB) nr. 730/2006, (EB) nr. 1033/2006 og (ESB) nr. 255/2010, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 232 frá 13. desember 2013, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 4 frá 23. janúar 2014, bls. 422.
7. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1. mgr. 56. gr., 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr., 2. og 3. mgr. 76. gr. og 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 3. júlí 2015.
F.
h.
r.
Steinunn
Valdís
Óskarsdóttir.
Einar Brynjarsson.
B deild - Útgáfud.: 20. júlí 2015