Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Mýrdalshreppur
Undirritunardagur
28. september 2026
Útgáfudagur
12. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1082/2026
28. september 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna verslunar- og þjónustusvæðis VÞ26 í Steig.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 28. september 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2021-2033, sem samþykkt var í sveitarstjórn 22. apríl 2026.
Í breytingunni felst aukning á hámarksbyggingarmagni innan verslunar- og þjónustusvæðis VÞ26 í Steig úr 600 m² í 1.500 m².
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 28. september 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 12. október 2026