Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
10. nóvember 2025
Útgáfudagur
24. nóvember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1209/2025
10. nóvember 2025
AUGLÝSING
um staðfestingu á breytingu á skipulagsskrá fyrir Málræktarsjóð, nr. 297/1995, með síðari breytingum nr. 889/2011 og 167/2025.
1. gr.
Samþykktar hafa verið eftirfarandi breytingar á skipulagsskrá sjóðsins:
10. gr. skipulagsskrárinnar verður svohljóðandi:
Stjórn sjóðsins setur sér reglur um úthlutun fjár til verkefna sjóðsins og um veitingu viðurkenningar, og séu þær kynntar almenningi. Óheimilt er að úthluta meira en 1/20 af hreinni eign sjóðsins á hverju ári.
2. gr.
Ofangreind breyting á skipulagsskrá fyrir Málræktarsjóð staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
F.h. sýslumannsins á Vestfjörðum, 10. nóvember 2025.
Thelma Dögg Theodórsdóttir.
Helga Haraldsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 24. nóvember 2025