Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hveragerðisbær

Málaflokkur

Vatnamál, Hveragerði

Undirritunardagur

13. desember 2019

Útgáfudagur

15. janúar 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1384/2019

13. desember 2019

AUGLÝSING

um breytingu á gjaldskrá Vatnsveitu Hveragerðis, nr. 118/2011.

1. gr.

3. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:

Hveragerðisbær innheimtir vatnsgjald af öllum fasteignum í Hveragerði, sem tengdar eru eða munu tengjast Vatnsveitu Hveragerðis, sbr. 6. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004. Vatnsgjaldið, ásamt öðrum tekjum vatnsveitunnar stendur undir rekstri hennar.

Árlegt vatnsgjald í Hveragerði er 0,02% af fasteignamati fasteigna í A-flokki.

Árlegt vatnsgjald í Hveragerði er 0,17% af fasteignamati fasteigna í B- og C-flokki.

2. gr.

4. gr. gjaldskrárinnar orðist svo:

Hveragerðisbær innheimtir notkunargjald fyrir vatn sem er notað til atvinnustarfsemi eða annars en venjulegra heimilisþarfa, sbr. 7. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga. Notkunargjaldið er miðað við notkun mælda í rúmmetrum.

Notkunargjald í Hveragerði er kr. 13 pr. rúmmetra vatns.

Greiðendur aukavatnsgjalds skulu auk þess greiða leigu sem innheimt er árlega vegna notkunarmæla. Mælaleiga er:

Mælaleiga fyrir minni en 50 mm, kr. 7.600.

Mælaleiga fyrir stærri en 50 mm, kr. 30.100.

3. gr.

Þannig samþykkt af bæjarstjórn Hveragerðisbæjar þann 12. desember 2019, sbr. 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga og öðlast þegar gildi.

Hveragerði, 13. desember 2019.

Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 15. janúar 2020

Tengd mál