Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Reykjanesbær
Undirritunardagur
27. apríl 2026
Útgáfudagur
12. maí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 474/2026
27. apríl 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar vegna iðnaðar- og hafnarsvæðis í Helguvík.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 27. apríl 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. janúar 2026.
Í breytingunni felst að 1,5 ha iðnaðarsvæði (I10) fyrir geymslu á skipaeldsneyti er fellt út og hafnarsvæði (H1) stækkar sem því nemur. Jafnframt er afmörkun iðnaðarsvæðis (I8) breytt en stærð þess helst óbreytt.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 27. apríl 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 12. maí 2026