Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Dalvíkurbyggð

Undirritunardagur

1. júní 2026

Útgáfudagur

16. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 683/2026

1. júní 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar vegna Árskógsvirkjunar.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 1. júní 2026 breytingu á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 sem samþykkt var í sveitarstjórn 17. mars 2026.

Í breytingunni felst skilgreining á um 58 ha iðnaðarsvæði 834-I í Þorvaldsdal vegna áforma um að reisa 5 MW vatnsaflsvirkjun, Árskógsvirkjun. Einnig eru skilgreind þrjú efnistökusvæði, 835-837-N, í Þorvaldsdal, um 0,5 ha að stærð hvert með heimild fyrir allt að 40.000 m³ efnistöku samanlagt. Auk þess er gert ráð fyrir allt að 95.000 m³ efnistöku í fyrirhuguðu lónsstæði. Landbúnaðarsvæði minnkar sem breytingunni nemur.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. 1. júní 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 16. júní 2026

Tengd mál