Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Umferðarmál, Atvinnuréttindi, Leigubifreiðar
Undirritunardagur
21. september 2026
Útgáfudagur
5. október 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1054/2026
21. september 2026
AUGLÝSING
um staðfestingu námskrár fyrir rekstrarleyfi til leigubifreiðaaksturs.
1. gr.
Með vísan til 6. gr. laga um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, og 4. gr. reglugerðar nr. 324/2023 hefur innviðaráðherra staðfest námskrá Samgöngustofu fyrir rekstrarleyfi til leigubifreiðaaksturs.
2. gr.
Námskráin sem birt er sem fylgiskjal með auglýsingu þessari öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 21. september 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
NÁMSKRÁ
Samgöngustofu fyrir rekstrarleyfi til leigubifreiðaaksturs.
I. KAFLIUm námskrána.
Námskráin kveður á um markmið og fyrirkomulag námskeiðs fyrir rekstrarleyfishafa í leigubifreiðaakstri.
Námskráin byggir á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, og reglugerð um leigubifreiðaakstur, nr. 324/2023. Í 6. gr. framangreindra laga er kveðið á um að skilyrði rekstrarleyfis sé að hafa fullnægjandi starfshæfni, þar með talin fullnægjandi ökuréttindi og tilskilin námskeið sem nánar er fjallað um í 4. gr. reglugerðar um leigubifreiðaakstur. Einnig kemur fram að umsækjandi um rekstrarleyfi til leigubifreiðaaksturs skuli hafa lokið námskeiðum um leigubifreiðaakstur, rekstur, bókhald og skattskil og fleira og hafa staðist próf. Þar kemur einnig fram að þegar umsækjandi um rekstrarleyfi er lögaðili skal fyrirsvarsmaður hans hafa lokið námskeiðum um rekstur, bókhald og skattskil og fleira og hafa staðist próf. Námskeið skal fara fram hjá námskeiðshaldara sem Samgöngustofa hefur viðurkennt.
Námskrá þessi er sett af Samgöngustofu og staðfest af innviðaráðherra.
II. KAFLISkipulag náms.
2.1. Markmið.
Námskeið fyrir rekstrarleyfishafa leigubifreiða skal taka mið af námskrá þessari og eru haldin af námskeiðshöldurum sem Samgöngustofa hefur viðurkennt. Bjóða má upp á námskeið í fjarkennslu í rauntíma.
2.2. Námsmat.
Námskeiði lýkur með skyldubundnum prófum til að meta hvort þátttakandi hefur náð tilskilinni þekkingu og hæfni í öllum þeim námsþáttum sem námskeiðið fjallar um. Þátttakandi skal standast skriflegt próf, án utanaðkomandi aðstoðar, úr öllum námsþáttum með lágmarkseinkunn 8 af 10. Fyrirlögn prófa skal fylgja prófareglum sem Samgöngustofa setur.
Mætingarskylda er í námið og skulu upplýsingar um viðveru hvers einstaks nemanda sérstaklega skráðar af námskeiðshaldara.
2.3. Hæfniviðmið.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lögum og reglugerðum er lúta að rekstri leigubifreiða,
- helstu skattamálum er tengjast rekstri leigubifreiða,
- hlutverki launagreiðenda varðandi skattamál og
- vinnulöggjöf.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
- útreikningi launa,
- notkun rafrænnar skrár,
- að tilkynna tjón og
- að gera fjárhagsáætlanir.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera skattframtal,
- gera upp atvinnurekstur,
- velja fullnægjandi tryggingar,
- bera ábyrgð á rekstri leigubifreiðar og
- greina hvaða þættir hafa áhrifa á mengun og hvernig er hægt að sporna við þeim.
2.4. Námsþættir.
Innihald og fræðsla á námskeiði skal taka mið af því að byggja upp og bæta við þekkingu og færni sem er nauðsynleg fyrir rekstrarleyfishafa í leigubifreiðaakstri.
2.4.1. Stjórnsýslan.
Markmið: Að nemendur hafi yfirsýn yfir þá hluta stjórnsýslunnar er lúta að leigubifreiðastarfsemi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hlutverki stofnana stjórnsýslunnar gagnvart rekstrarleyfishöfum og
- rafrænum skrám.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
- að beita helstu lögum og reglugerðum sem tengjast rekstri leigubifreiða og
- að finna upplýsingar í helstu gagnagrunnum sem lúta að starfsemi leigubifreiða.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nota rafræna skrá í samræmi við 8. gr. laga um leigubifreiðaakstur.
2.4.2. Skattamál – almenn skattskil.
Markmið: Að framteljandi þekki skyldur sínar sem verktaki eða launamaður og kunni skil á reiknuðu endurgjaldi, tryggingagjaldi, tekjuskatti og útsvari, greiðslu í lífeyrissjóði og staðgreiðslu skatta.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hlutverki launagreiðenda,
- tekjuskatti,
- lögum og reglum um fyrningar og
- helstu málsmeðferðum og kæruleiðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
- útreikningi launa og
- greiðslum í lífeyrissjóð.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera skattframtal,
- gera upp atvinnurekstur,
- reikna rekstrarkostnað og
- reikna bifreiðakostnað.
2.4.3. Vátryggingar – skilmálar, bótaábyrgð og forvarnir.
Markmið: Að kunna skil á helstu ákvæðum varðandi bætur og bótaskyldu, vátryggingar og skilmála.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- bótaábyrgð og bótasviði og
- algengustu tjónum og orsökum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
- að bera saman tryggingaskilmála og
- að tilkynna tjón.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja fullnægjandi tryggingar fyrir reksturinn og
- grípa til nauðsynlegra forvarna til að forðast slys og bótaskyldu.
2.4.4. Fjármögnun, rekstur og bókhald.
Markmið: Að öðlast yfirsýn yfir kostnað, fjármagnsstreymi og áætlanagerð í rekstri.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- föstum og breytilegum kostnaði,
- veltu fyrirtækja,
- helstu lánamöguleikum og
- helstu reglum um reikningsskil.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
- að gera grein fyrir fjármagnsstreymi og
- að gera reikningsskil.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera fjárhagsáætlanir og
- áætla fjármagnsþörf.
2.4.5. Vinnulöggjöf – skaðabótaréttur – félagsleg réttindi.
Markmið: Að vita hvað felst í vinnurétti og hvernig hann er samsettur, að geta greint á milli verksamninga og ráðningarsamninga og þekkja stöðu einyrkja á vinnumarkaði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- stjórnsýslu er lýtur að leigubifreiðum,
- vinnurétti,
- stjórnarskrá Íslands,
- helstu lögum á vinnumarkaði og
- muni á verktaka og launþega.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í:
- að miðla upplýsingum um réttindi og skyldur á vinnumarkaði,
- að útskýra samninga, tvíhliða, formlega og
- að útskýra mun á verksamningum og ráðningarsamningum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera samninga sem lúta að rekstri leigubifreiða.
III. KAFLIHlutverk og skyldur námskeiðshaldara.
3.1 Viðurkenning námskeiðshaldara.
Námskeið vegna rekstrarleyfis til leigubifreiðaaksturs skal fara fram á vegum viðurkennds námskeiðshaldara. Námskeiðshaldari skal starfa í samræmi við gildandi lög, reglur og námskrá sem Samgöngustofa setur og ráðherra samþykkir.
Samkvæmt 13. gr. laga nr. 120/2022 hefur Samgöngustofa eftirlit með námskeiðshaldi og kann að kalla eftir gögnum sem varða starfsemina.
Sækja skal sérstaklega um viðurkenningu frá Samgöngustofu. Með umsókn skal fylgja:
- Kennsluáætlun fyrir hvern námsþátt, sbr. 2.2,
kennslustaður/ir,
kennsluefni,
kennsluaðferðir og
fjöldi nemenda. - Lýsing á menntun, hæfi leiðbeinanda og starfssvið.
- Drög að stundaskrám.
Kennsluáætlun skal skila á sérstöku eyðublaði.
3.2 Skyldur.
Námskeiðshaldari skal senda Samgöngustofu árlega skýrslu um skipulag og starfsemi þar sem fram koma m.a. upplýsingar um fjölda nemenda, nýmæli í starfseminni og frávik frá kennsluskrá á eyðublaði sem Samgöngustofa lætur í té.
Sérhæfðir leiðbeinendur á vegum námskeiðshaldara skulu annast kennslu. Þeir skulu hafa þekkingu og menntun á því efni sem fram kemur í námskrá. Námskeiðshaldari skal útnefna faglegan stjórnanda sem hefur lokið menntun á sviði kennslufræði.
Námskeiðshaldari skal senda Samgöngustofu upplýsingar um nemendur (nöfn og kennitölur) sem lokið hafa námi samkvæmt námskrá þessari að loknu námi.
Að loknu námskeiði fær nemandi staðfestingu þar sem fram kemur nafn þátttakanda og námskeiðs, dagsetning námskeiðsloka, stutt lýsing á innihaldi námskeiðs og fjöldi kennslustunda.
3.3 Gæðastjórnun.
Námskeiðshaldari skal vinna samkvæmt skýrum og skráðum ferlilýsingum og vera með innra gæðaeftirlit. Einn þáttur í innra gæðaeftirliti námskeiðshaldara er að leggja fyrir kennslumat í lok námskeiðs þar sem nemendum gefst kostur á að tjá sig um hin ýmsu atriði þess. Niðurstöður kennslumats skulu vera aðgengilegar.
B deild — Útgáfudagur: 5. október 2026