Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skatturinn
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
9. desember 2024
Útgáfudagur
23. desember 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1584/2024
9. desember 2024
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2025.
Eignamat í árslok.
Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður, sbr. framangreint.
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2024, álagningarárið 2025, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:
kr. | ||
Mjólkurkýr | 162.000 | |
Holdakýr og naut | 170.000 | |
Kvígur, 1½ árs og eldri | 142.000 | |
Geldneyti | 84.000 | |
Kálfar, yngri en ½ árs | 16.000 | |
Ær og sauðir | 9.600 | |
Hrútar | 22.000 | |
Gemlingar | 14.000 | |
Geitur | 12.000 | |
Hross á 14. vetri og eldri | 27.000 | |
Hross á 5. – 13. vetri | 65.000 | |
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri | 280.000 | |
Önnur nýtanleg reiðhross | 150.000 | |
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri | 450.000 | |
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri | 600.000 | |
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri | 750.000 | |
Tryppi á 2. – 4. vetri | 21.000 | |
Folöld | 15.000 | |
Hænsni, eldri en 6 mánaða | 1.170 | |
Varphænsni 6 mánaða og yngri | 800 | |
Kjúklingar | 345 | |
Endur | 1.220 | |
Gæsir | 2.430 | |
Kalkúnar | 3.650 | |
Gyltur | 55.000 | |
Geltir | 80.000 | |
Grísir | 15.000 | |
Kanínur | 5.800 | |
Minkar: | Karldýr | 5.400 |
Kvendýr | 3.600 | |
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri | 0 |
Reykjavík, 9. desember 2024.
Snorri Olsen ríkisskattstjóri.
B deild - Útgáfud.: 23. desember 2024