Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hafnarfjarðarkaupstaður

Málaflokkur

Skipulagsmál, Hafnarfjörður

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

26. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 728/2026

11. júní 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.

Breyting á deiliskipulagi Hellnahrauns, 3. áfanga, vegna Borgahellu 6, 6H og 8.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. júní 2026 breyting á deiliskipulagi Hellnahrauns, 3. áfanga, vegna Borgahellu 6, 6H og 8.

Lóðirnar nr. 6 og 8 eru sameinaðar í eina lóð. Lóðin er stækkuð til norðurs um u.þ.b. 4 m. Lóð nr. 6H fyrir veitumannvirki er færð norður. Nýtingarhlutfall verður 0,4–0,6.

Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.

Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi Áslands, 2. áfanga, fyrir Erluás 33.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. júní 2026 breyting á deiliskipulagi Áslands, 2. áfanga, fyrir Erluás 33. Breytingin felst í að lóðin við Erluás 33 er stækkuð til suðurs um 313 m² og verður 1.173 m². Byggingarheimildir aukast ekki við stækkun lóðar, hámarksbyggingarmagn á lóðinni er 304 m². Að öðru leyti gilda skilmálar hverfisins.

Málsmeðferð var skv. 3. mgr. 44. gr. ofangreindra laga.

Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi Áslands, 3. áfanga, fyrir Hlíðarás 20.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. júní 2026 breyting á deiliskipulagi Áslands, 3. áfanga, fyrir Hlíðarás 20. Breytingin felur í sér breytingu á skipulagsskilmálum fyrir Hlíðarás 20. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,45 í 0,47. Byggingarreitur er stækkaður um 0,1 m til norðurs, suðurs og austurs og 1,5 m til vesturs til að rúma nýja utanhússklæðningu og skyggni/sólskála.

Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.

Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi Krýsuvíkur fyrir rannsóknarborholur.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. júní 2026 breyting á deiliskipulagi Krýsuvíkur fyrir rannsóknarborholur. Breytingin felst í færslu á legu aðkomuvegar. Staðsetningu vegtengingar hefur verið hliðrað/breytt til samræmis við ábendingar Vegagerðarinnar til þess að tryggja fullnægjandi umferðaröryggi og sýnileika á vegamótum.

Skilmálar gildandi deiliskipulags haldast óbreyttir. Umhverfisáhrif eru sambærileg.

Málsmeðferð var skv. 3. mgr. 44. gr. ofangreindra laga.

Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Breyting á deiliskipulagi, miðbær – Hraun, vestur vegna Vitastígs 12a.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. maí 2026 breyting á deiliskipulaginu miðbær – Hraun, vestur vegna Vitastígs 12a.

Breytingin felst í því að stofnuð verður ný lóð fyrir vitann, Vitastígur 12a, 243,2 m² að stærð.

Málsmeðferð var skv. 1. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.

Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Hafnarfirði, 11. júní 2026.

F.h. skipulagsfulltrúa,

Anne Steinbrenner verkefnastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 26. júní 2026

Tengd mál