Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Málaflokkur
Félagsmál
Undirritunardagur
30. júní 2025
Útgáfudagur
30. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 37/2025
30. júní 2025
LÖG
um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:
- Í stað orðsins „þrjá“ í 1. mgr. kemur: sex.
- Í stað orðsins „þrjá“ í 2. mgr. kemur: sex.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:
- Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr.:
- Á eftir orðunum „í tengslum við“ kemur: meðgönguna eða.
- Á eftir orðunum „veikindin rakin til“ kemur: meðgöngunnar eða.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Veikindi foreldris í tengslum við meðgöngu eða fæðingu barns.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 34. gr. laganna:
- Í stað orðsins „þrjá“ í 1. mgr. kemur: sex.
- Í stað orðsins „þrjá“ í 2. mgr. kemur: sex.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 35. gr. laganna:
- Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr.:
- Á eftir orðunum „í tengslum við“ kemur: meðgöngu eða.
- Á eftir orðunum „veikindin rakin til“ kemur: meðgöngunnar eða.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Veikindi foreldris í tengslum við meðgöngu eða fæðingu barns.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 54. gr. laganna:
- Í stað orðanna „um hver áramót“ í 2. mgr. kemur: svo sem.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Endurskoðun fjárhæða.
6. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2025 og eiga við um foreldra sem rétt eiga til greiðslna samkvæmt lögum þessum.
7. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á 33. gr. laga um sorgarleyfi, nr. 77/2022:
- Í stað orðanna „um hver áramót“ í 2. mgr. kemur: svo sem.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Endurskoðun fjárhæða.
Gjört á Bessastöðum, 30. júní 2025.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Inga Sæland.
A deild - Útgáfud.: 30. júní 2025