Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

21. júní 2026

Útgáfudagur

3. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 17/2026

21. júní 2026

AUGLÝSING

um bókanir um fiskveiðiviðræður milli Færeyja, Íslands, Noregs og Bretlands um stjórnun makrílveiða í Norðaustur-Atlantshafi.

Hinn 15. desember 2025 gerðu Færeyjar, Ísland, Noregur og Bretland með sér sameiginlega bókun um fiskveiðiviðræður um stjórnun makrílveiða í Norðaustur-Atlantshafi. Sama dag voru eftirfarandi fimm tvíhliða bókanir gerðar, sem teljast óaðskiljanlegur hluti marghliða bókunarinnar:

sameiginleg bókun um fiskveiðiviðræður milli Færeyja og Bretlands varðandi stjórnun makrílveiða í Norðaustur-Atlantshafi frá 15. desember 2025,

sameiginleg bókun um fiskveiðiviðræður milli Noregs og Bretlands varðandi stjórnun makrílveiða í Norðaustur-Atlantshafi frá 15. desember 2025,

sameiginleg bókun um fiskveiðiviðræður milli Íslands og Noregs varðandi stjórnun makrílveiða í Norðaustur-Atlantshafi frá 15. desember 2025,

sameiginleg bókun um fiskveiðiviðræður milli Íslands og Færeyja varðandi stjórnun makrílveiða í Norðaustur-Atlantshafi frá 15. desember 2025 og

sameiginleg bókun um fiskveiðiviðræður milli Færeyja og Noregs varðandi stjórnun makrílveiða í Norðaustur-Atlantshafi frá 15. desember 2025.

Bókanirnar öðluðust gildi 15. desember 2025 og eru birtar sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 21. júní 2026.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.

C deild — Útgáfudagur: 3. júlí 2026

Tengd mál