Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi, Tryggingar, Vátryggingar
Undirritunardagur
29. október 2026
Útgáfudagur
3. nóvember 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1165/2026
29. október 2026
REGLUR varðandi samræmdar forsendur staðalreglunnar við útreikning gjaldþolskröfu vátryggingafélaga.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.
2. gr. Samræmdar útreikningsforsendur staðalreglunnar.
Samkvæmt 96. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, skal gjaldþolskrafa annaðhvort reiknuð eftir staðalreglu eða eigin líkani í samræmi við XVI. kafla laganna. Til að tryggja samræmdar forsendur staðalreglunnar við útreikning gjaldþolskröfu vátryggingafélaga gefur Seðlabankinn út reglur sem byggjast á tæknilegum framkvæmdarstöðlum Evrópsku vátrygginga- og lífeyriseftirlitsstofnunarinnar (EIOPA).
3. gr. Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast eftirtaldar reglugerðir gildi hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2011 frá 11. nóvember 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar skrár yfir héraðsstjórnir og staðaryfirvöld, en fara skal með áhættuskuldbindingar þeirra sem áhættuskuldbindingar gagnvart ríkjum í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2018 frá 23. mars 2018, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6 frá 30. janúar 2020, bls. 41. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 18-19.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2016 frá 11. nóvember 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar hlutabréfavísitölu sem notuð er vegna samhverfrar aðlögunar við útreikning gjaldþolskröfu með staðalreglu vegna hlutabréfaáhættu í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2018 frá 23. mars 2018, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6 frá 30. janúar 2020, bls. 41. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 91-93.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2017 frá 11. nóvember 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar aðlöguðu stuðlana til að reikna út gjaldþolskröfu fyrir gjaldmiðlaáhættu vegna gjaldmiðla sem bundnir eru við evru í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2018 frá 23. mars 2018, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6 frá 30. janúar 2020, bls. 41. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 94-95.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1800 frá 11. október 2016 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar röðun lánshæfismats utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja á hlutlægan kvarða lánshæfisþrepa í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2018 frá 23. mars 2018, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6 frá 30. janúar 2020, bls. 41. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 3. maí 2018, bls. 425-432.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/633 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1800 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar röðun lánshæfismats utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja á hlutlægan kvarða lánshæfisþrepa í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2018 frá 21. september 2018, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 15 frá 4. mars 2021, bls. 27. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72 frá 8. nóvember 2018, bls. 161-168.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/744 frá 4. júní 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1800 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar röðun lánshæfismats utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja á hlutlægan kvarða lánshæfisþrepa í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 47/2021 frá 5. febrúar 2021, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 3 frá 11. janúar 2024, bls. 87. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71 frá 11. nóvember 2021, bls. 529-535.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2006 frá 16. nóvember 2021 um tæknilega framkvæmdarstaðla um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1800 að því er varðar röðun lánshæfismats utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja á hlutlægan kvarða lánshæfisþrepa í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 139/2022 frá 29. apríl 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 92. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 45 frá 15. júní 2023, bls. 1-9.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1820 frá 1. júlí 2024 um breytingu á tæknilegum framkvæmdarstöðlum sem mælt er fyrir um í framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1800 að því er varðar vörpunartöflur sem tilgreina nánar röðun lánshæfismats utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja á hlutlægan kvarða lánshæfisþrepa í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 290/2024 frá 6. desember 2024 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25 frá 24. apríl 2025, bls. 69. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 17 frá 20. mars 2025, bls. 313-320.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/911 frá 27. apríl 2026 um breytingu á tæknilegum framkvæmdarstöðlum sem mælt er fyrir um í framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/2011 að því er varðar uppfærslu á skrám yfir héraðsstjórnir og staðaryfirvöld, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2026 frá 25. september 2026. Reglugerðin er birt í fylgiskjali 1 með reglum þessum.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar sem settar eru samkvæmt heimild í 1. og 2. mgr. 101. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur varðandi samræmdar forsendur staðalreglunnar við útreikning gjaldþolskröfu vátryggingafélaga, nr. 497/2025.
Seðlabanka Íslands, 29. október 2026.
Björk Sigurgísladóttir
varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits.
Linda Kolbrún Björgvinsdóttir
framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 3. nóvember 2026