Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
15. desember 2025
Útgáfudagur
5. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1588/2025
15. desember 2025
REGLUR
um mat á vaxtaáhættu vegna viðskipta utan veltubókar.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
2. gr. Mat á vaxtaáhættu.
Um álagssviðsmyndir í tengslum við eftirlit, sameiginlegar forsendur líkana og stika til að reikna út hagrænt virði eigin fjár og hvað telst mikil lækkun á hreinum vaxtatekjum, sbr. 5. mgr. 81. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, fer samkvæmt reglugerð (ESB) 2024/856, sbr. 3. gr.
Við mat á áhættu sem leiðir af hugsanlegum vaxtabreytingum sem hafa áhrif bæði á hagrænt virði eigin fjár og hreinar vaxtatekjur af viðskiptum utan veltubókar, eins og það er reiknað skv. 78. gr. f laga um fjármálafyrirtæki, skal fjármálafyrirtæki taka mið af reglugerð (ESB) 2024/857, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.
3. gr. Innleiðing reglugerða.
Með vísan til 2. gr. gilda eftirtaldar reglugerðir hér á landi:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/856 frá 1. desember 2023 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina áfallasviðsmyndir í tengslum við eftirlit, sameiginlegar forsendur líkana og stika og hvað telst mikil lækkun, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2024 frá 23. september 2024.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/857 frá 1. desember 2023 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina staðalaðferð og einfaldaða staðalaðferð til að meta áhættu sem leiðir af hugsanlegum breytingum á vöxtum sem hafa áhrif bæði á hagrænt virði eigin fjár og hreinar vaxtatekjur af starfsemi stofnunar utan veltubókar, sem tekin var upp í EES- samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2024 frá 23. september 2024.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1275 frá 17. mars 2025 um leiðréttingu á tilteknum tungumálaútgáfum á framseldri reglugerð (ESB) 2024/857 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB varðandi tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina staðalaðferð og einfaldaða staðalaðferð til að meta áhættu sem leiðir af hugsanlegum breytingum á vöxtum sem hafa áhrif bæði á hagrænt virði eigin fjár og hreinar vaxtatekjur af starfsemi stofnunar utan veltubókar, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 241/2025 frá 24. október 2025.
Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/856, 2024/857 og 2025/1275 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX%3A32024R0856, birt í OJ deild L, undirdeild R, 2024/856, þann 24. apríl 2024;
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX%3A32024R0857, birt í OJ deild L, undirdeild R, 2024/857, þann 24. apríl 2024;
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32025R1275, birt í OJ deild L, undirdeild R, 2025/1275, þann 27. júní 2025.
4. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 6. tölul. 1. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Við gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 1341/2024 um mat á vaxtaáhættu vegna viðskipta utan veltubókar.
Seðlabanka Íslands, 15. desember 2025.
Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Gísli Óttarsson
framkvæmdastjóri.
B deild — Útgáfudagur: 5. janúar 2026