Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Málaflokkur
Reykjavík, Umferðarmál
Undirritunardagur
2. ágúst 2018
Útgáfudagur
16. ágúst 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 781/2018
2. ágúst 2018
AUGLÝSING
um umferð um Hvalfjarðargöng.
Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum vegamálastjóra hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið eftirtaldar takmarkanir á umferð um Hvalfjarðargöng:
- að hámarkshraði verði 70 km/klst.;
- að öll umferð gangandi og hjólandi vegfarenda, umferð reiðmanna og rekstur búfjár, verði bönnuð nema með sérstöku leyfi lögreglustjóra;
-
að
takmarkanir
á
flutningi
með
hættuleg
efni
miðist
við
reglugerð
um
flutning
á
hættulegum
farmi
á
landi
nr.
1077/2010.
Í
reglugerðinni,
XV.
viðauka,
er
farmur
flokkaður
með
tilliti
til
flutnings
um
jarðgöng.
Um
Hvalfjarðargöng
skal
eftirfarandi
gilda:
„Jarðgangaflokkur B“ séu ekki frekari takmarkanir auglýstar. Þetta merkir meðal annars að flutningur á eldfimu gasi í stórum tönkum og sprengiefni yfir 1.000 kg sé bannaður.
„Jarðgangaflokkur D“: Kl. 10.00 – 22.00 föstudaga, laugardaga og sunnudaga, kl. 15.00 – 20.00 mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.
Jafnframt eftirfarandi hátíðir sem og daginn fyrir og eftir þær eins og um sunnudaga sé að ræða: páskar, hvítasunna og verslunarmannahelgi. Gildir aðeins fyrir eftirtalin efni: UN-nr. 1202 dísilolíu, UN-nr. 1203 bensín og UN-nr. 1863 flugvélaeldsneyti; - að akstur dráttarvéla og vinnuvéla verði bannaður á sömu tímum og jarðgangaflokkur D er í gildi, samkvæmt lið 3.
Setja skal upp viðeigandi umferðarmerki, samkvæmt reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra.
Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.
Frá sama tíma fellur úr gildi auglýsing nr. 1292/2017 um umferð um Hvalfjarðargöng, nr. 1292/2017.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 7. ágúst 2018.
Hulda Elsa Björgvinsdóttir staðgengill lögreglustjóra.
B deild - Útgáfud.: 16. ágúst 2018