Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Grímsnes- og Grafningshreppur

Undirritunardagur

18. júní 2026

Útgáfudagur

2. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 753/2026

18. júní 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulagsmál í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:

Deiliskipulagsbreyting, Kerið 1, L172724, byggingarreitur stækkaður.

Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Kersins 1, L172724. Í breytingunni felst stækkun byggingarreits á lóð Kervegs 2. Bætt er við skilmála heimild til að koma fyrir spennistöð og skólphreinsivirki innan byggingarreits. Einnig er heimilt að koma fyrir tímabundnum starfsmanna- og svefnbúðum innan byggingarreits meðan á byggingu þjónustuhúss stendur.

Samþykkt í sveitarstjórn 16. júní 2026.

Deiliskipulagsbreyting, Bjarkarlækur, L224049, breytt byggingarmagn.

Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Bjarkarlækjar, L224049. Í breytingunni felst að heimilt yrði að reisa allt að 150 m² hesthús/skemmu á byggingarreit B1. Hámarksbyggingarmagn á byggingarreit B2 yrði á móti lækkað úr 400 m² niður í 250 m². Heildarbyggingarmagn fyrir hesthús/skemmu á lóðinni helst óbreytt.

Samþykkt í sveitarstjórn 16. júní 2026.

Deiliskipulagsbreyting, Álfabyggð í landi Miðengis, Álfabyggð 8, L238805, 10, L238806, 12, L238807, og 42, L238814, breyttir byggingarreitir.

Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Álfabyggðar í landi Miðengis. Í breytingunni felst að byggingarreitir á lóðum nr. 8, 10, 12 og 42 verða samfelldir og staðsettir í 10 m fjarlægð frá lóðamörkum.

Samþykkt í sveitarstjórn 22. apríl 2026.

Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 18. júní 2026.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Sigríður Kristjánsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 2. júlí 2026

Tengd mál