Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Heilbrigðiseftirlit, Umhverfismál, Loftslagsmál, Losunarleyfi
Undirritunardagur
24. desember 2025
Útgáfudagur
29. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 106/2025
24. desember 2025
LÖG
um breytingu á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir (ETS-kerfið).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
I. KAFLIBreyting á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
- 4. tölul. orðast svo: Losun: Losun gróðurhúsalofttegunda frá upptökum í stöð eða losun frá loftfari í flugstarfsemi, sem tilgreind er í I. viðauka, eða frá skipum sem stunda sjóflutningastarfsemi, sem tilgreind er í I. viðauka, á lofttegundum sem eru tilgreindar í tengslum við viðkomandi starfsemi.
- Orðin „hefur starfsleyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og“ í 6. tölul. falla brott.
2. gr.
Í stað orðsins „Umhverfisstofnun“ í 1. málsl. 3. gr. laganna og sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarmynd: Umhverfis- og orkustofnun.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. mgr. 10. gr. laganna:
- Á eftir orðunum „um úthlutun losunarheimilda“ kemur: og takmarkanir þar á.
- Á eftir orðinu „orkuúttekt“ kemur: eða gert sambærilegar ráðstafanir.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í reglugerðinni skal jafnframt kveðið á um form og efni kolefnishlutleysisáætlunar og hvenær skerða skal úthlutun ef skilyrði er varða kolefnishlutleysisáætlun eru ekki uppfyllt.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:
- Í stað orðanna „er heimilt að“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: skal.
- Á eftir orðunum „framkvæmd orkuúttektar“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: eða sambærilegra ráðstafana.
- Á eftir orðunum „skv. I. viðauka, einnig“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: áætlun um losun ef upplýsingar skortir, sem og.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:
- Orðin „samkvæmt nánari reglum í reglugerð sem ráðherra setur skv. 4. mgr. 11. gr.“ í 2. mgr. falla brott.
- Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ráðherra er þó heimilt að kveða á um það í reglugerð að víkja megi frá skyldu til að skila losunarheimildum að öllu leyti eða að hluta ef um er að ræða losun frá skipi í ísflokki eða frá skipi í tengslum við siglingu milli hafnar innan EES og hafnar utan EES, milli hafnar í EES-ríki og eyju eða ysta svæðis innan sama ríkis, eða milli landa þegar siglingin er liður í opinberri þjónustu.
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Skylda til að skila inn losunarheimildum myndast hvorki vegna losunar sem staðfest er að hafi verið fönguð og flutt til varanlegrar geymslu í stöð sem hefur gildandi leyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir né vegna losunar sem litið er svo á að hafi verið fönguð og notuð á þann hátt að hún sé orðin varanlega bundin með efnatengjum í vörum þannig að hún fari ekki út í andrúmsloftið við venjulega notkun, þ.m.t. við alla venjulega starfsemi sem á sér stað eftir að líftíma vörunnar lýkur. Ráðherra skal setja í reglugerð nánari ákvæði um þær kröfur sem skal uppfylla svo að líta megi á að gróðurhúsalofttegundir séu orðnar varanlega bundnar með efnatengjum. - Orðin „og um heimild skipa með ísflokk til að standa skil á færri losunarheimildum“ í 6. mgr. falla brott.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 26. gr. laganna:
- Í stað orðanna „flugrekenda og skipafélaga“ í 10. tölul. kemur: og flugrekenda.
- Á eftir 15. tölul. koma tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Samþykkt vöktunaráætlana vegna losunar frá starfsemi rekstraraðila, sbr. 1. mgr. 11. gr.
- Yfirferð og umsýslu vegna úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda til rekstraraðila.
7. gr.
Á eftir orðunum „upphæð stjórnvaldssekta“ í 1. málsl. 8. mgr. 30. gr. laganna kemur: skv. 5. mgr.
8. gr.
Við 33. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Með lögum þessum er ríkisstjórninni heimilað að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun
sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 183/2025 frá 11. júlí 2025.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða II í lögunum:
- 1. málsl. 4. mgr. orðast svo: Viðbótarúthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til flugrekenda skv. 2. mgr. er háð skilyrði um skil flugrekenda á kolefnishlutleysisáætlun í samræmi við reglugerð ESB um efnisinnihald og uppsetningu kolefnishlutleysisáætlunar sem þörf er á vegna úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda, sbr. 7. mgr. 10. gr., til Umhverfis- og orkustofnunar.
- Í stað orðsins „skýrslu“ í 6. mgr. kemur: áætlunar.
- Við 7. mgr. bætist: og ákvæði er varða kolefnishlutleysisáætlun skv. 4. mgr.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á töflu í I. viðauka laganna:
- Í stað tilvísunarinnar „12. gr.“ í 2. mgr. kemur: 11. gr.
- 2. mgr. undir starfseminni „Flug“ flyst og verður 3. mgr.
- Í stað tilvísunarinnar „l-lið“ í 2. málsl. j-liðar og k-lið 3. mgr. undir starfseminni „Flug“ kemur: l- og m-lið.
II. KAFLIBreyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
11. gr.
Í stað orðsins „loftslagsmál“ í 3. mgr. 33. gr. f laganna kemur: viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
12. gr.
Í stað orðsins „loftslagsmál“ í 1., 2. og 4. mgr. 37. gr. laganna kemur: viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.
13. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 24. desember 2025.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Jóhann Páll Jóhannsson.
A deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025