Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Vesturbyggð

Málaflokkur

Sorphreinsun, Barðastrandarsýslur

Undirritunardagur

17. desember 2025

Útgáfudagur

7. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1625/2025

17. desember 2025

GJALDSKRÁ

vegna meðhöndlunar úrgangs í Vesturbyggð.

1. gr.

Gjaldskrá þessi er sett í samræmi við samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Vesturbyggð nr.214/2004 skv. 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.

Samkvæmt gjaldskrá þessari innheimtir Vesturbyggð gjöld til að standa undir kostnaði við förgun úrgangs, þ.m.t. sorphirðu, endurvinnslu, sorpeyðingu sem og uppsetningu og rekstur viðkomandi söfnunarstöðva.

2. gr.

Breytilegt gjald vegna sorphirðu er lagt á hvert fasteignanúmer í sveitarfélaginu. Innifalið í gjaldinu eru tunnur og losanir í samræmi við 15. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Vesturbyggð og tekur gjaldið til:

  1. 1 stk. 240 lítra tunnu fyrir heimilisúrgang sem losuð er á 28 daga fresti í þéttbýli en 21 dags fresti í dreifbýli, 61.038 kr. Einnig er boðið upp á 660 lítra kör, 167.855 kr., 360 lítra tunnu, 91.557 kr. og 120 lítra tunnu fyrir heimilisúrgang, 45.779 kr.
  2. 1 stk. 240 lítra tunnu með innstingiíláti fyrir endurvinnsluefni sem losuð er á 14 daga fresti í þéttbýli en 21 dags fresti í dreifbýli 30.518 kr. Ef fengin er önnur endurvinnslutunna við hvert heimili er innheimt 80% af gjaldi fyrir endurvinnslutunnu eða 24.414 kr.
  3. 1 stk. 120 lítra tunnu fyrir lífrænt efni sem losuð er á 14 daga fresti í þéttbýli, 30.518 kr. Þeir aðilar í dreifbýli sem greiða sorphirðugjald geta fengið ílát til moltugerðar. Fasteignaeigendum er heimilt að sækja um undanþágu frá gjaldi fyrir lífúrgang samkvæmt 6. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Vesturbyggð.

Önnur gjöld vegna meðhöndlunar úrgangs, sbr. 11. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Vesturbyggð, eru breytingakostnaður vegna íláta, 4.364 kr., sem innheimt er ef breytinga er óskað eftir að fasteignagjöld hafa verið lögð á. Einnig er heimilt að leggja á skrefagjald ef sorpílát eru lengra frá götu en 15 m í þéttbýli og er það 50% af hverri tunnu. Aukahirðing vegna óviðunandi flokkunar eða frágangs er kr. 9.990.

3. gr.

Fastagjald vegna reksturs grenndar- og söfnunarstöðva og annars fasts kostnaðar er lagt á hvert fasteignanúmer í sveitarfélaginu. Gjaldið er 24.568 kr. fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði og 43.971 kr. fyrir sumarhús.

4. gr.

Fyrirtæki, stofnanir og aðrir rekstraraðilar í Vesturbyggð greiða fyrir losun og eyðingu á öllum úrgangi samkvæmt gjaldskrá sorphirðuverktaka auk fastagjalds fyrir fasteignir, sbr. 3. gr. gjaldskrárinnar. Ef fyrirtæki, stofnanir og aðrir rekstraraðilar eru ekki með samning við þjónustuaðila er Vesturbyggð heimilt að leggja gjöld á ársgrundvelli á viðkomandi rekstur samkvæmt 8. gr. samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Vesturbyggð sem hér segir:

  Lítil fyrirtæki    187.020 kr.
  Meðalstór fyrirtæki    374.040 kr.
  Stærri fyrirtæki    561.060 kr.
  Stór fyrirtæki 1.496.160 kr.

5. gr.

Á söfnunarstöðvum Vesturbyggðar skal ekki tekið gjald fyrir móttöku á flokkuðum úrgangi sem ber úrvinnslugjald, má þar nefna pappa, plast o.fl. Þá skal ekki tekið gjald fyrir móttöku á garðaúrgangi og óvirkum úrgangi á sérmerktum losunarstöðum í Vesturbyggð.

6. gr.

Gjöld vegna sorphirðu og reksturs grenndar- og söfnunarstöðva og annars fasts kostnaðar skal innheimt með álögðum fasteignagjöldum ár hvert. Gjalddagar eru þeir sömu og gjalddagar fasteignagjalda.

7. gr.

Gjaldskrá þessi var samþykkt af bæjarstjórn Vesturbyggðar á 18. fundi 11. desember 2025. Gjaldskráin er sett skv. 2. mgr. 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 og 5. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, sbr. samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Vesturbyggð. Gjaldskráin öðlast þegar gildi og frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgangs í Vesturbyggð nr. 1733/2024.

Vesturbyggð, 17. desember 2025.

Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 7. janúar 2026

Tengd mál