Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Upplýsingar

Undirritunardagur

19. febrúar 2026

Útgáfudagur

5. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 220/2026

19. febrúar 2026

AUGLÝSING

um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.

1. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og auglýsingar nr. 4/2023, að fallast á tillögu fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. einnig umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna. Skal undanþága hvers þeirra endurskoðuð eigi síðar en 19. febrúar 2029:

  1. Blámi – fjárfestingarfélag ehf.
  2. Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf.
  3. Hömlur ehf.
  4. Hömlur fyrirtæki ehf.
  5. Landsbréf hf.
  6. TM tryggingar hf.
  7. TM líftryggingar hf.
  8. Íslensk endurtrygging hf.

2. gr.

Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að undanþágur eftirtalinna lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga skuli falla brott:

  1. Flói ehf.
  2. Lindir Resources ehf.

3. gr.

Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga og öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 19. febrúar 2026.

Kristrún Frostadóttir.

Benedikt Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 5. mars 2026

Tengd mál