Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Vestmannaeyjar

Undirritunardagur

28. júlí 2026

Útgáfudagur

12. ágúst 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 891/2026

28. júlí 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Vestmannaeyjabæjar vegna stækkunar á iðnaðarsvæði I3 í Viðlagafjöru.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) staðfesti 28. júlí 2026 breytingu á aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. júlí 2026.

Í breytingunni felst stækkun iðnaðarsvæðis I-3 í Viðlagafjöru úr 16,64 ha í 20,9 ha vegna áforma um stækkun landeldisstöðvar Laxeyjar ehf. úr 11.500 tonna framleiðslugetu í allt að 42.000 tonn á ári, með allt að 22.000 tonna hámarkslífmassa og seiðaeldisstöð með allt að 800 tonna lífmassa. Iðnaðarsvæðið stækkar til norðurs yfir meginhluta efnistökusvæðis E-1, sem fellur út, en nyrsti hluti þess verður hluti af óbyggðu svæði ÓB-3 sem stækkar um 0,5 ha. Skilmálum I-3 er jafnframt breytt þannig að fram kemur að lóðir innan svæðisins verði á stöllum frá um 6 m.y.s. upp í um 35 m.y.s. og að hámarkshæð bygginga verði 9 til 17 m frá gólfkóta, nánar útfært í deiliskipulagi.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 28. júlí 2026.

Guðrún Lára Sveinsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 12. ágúst 2026

Tengd mál