Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Ríkisstjórn, Stjórnarráð Íslands

Undirritunardagur

28. júní 2026

Útgáfudagur

1. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 65/2026

28. júní 2026

FORSETAÚRSKURÐUR

um breytingu á forsetaúrskurði nr. 5/2025, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

Að ég, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, staðfesti svohljóðandi forsetaúrskurð um breytingu á forsetaúrskurði nr. 5/2025, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands:

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. tölul. 1. gr.:

  1. Orðin „og málefni óbyggðanefndar“ í d-lið falla brott.
  2. M-liður fellur brott.
  3. Við bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Nefnd til að kanna aðbúnað barna sem vistuð voru fyrir atbeina stjórnvalda á einkaheimilum.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr.:

  1. G-liður 7. tölul. fellur brott.
  2. Í stað orðanna „Eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu“ í a-lið 8. tölul. kemur: Markaðssetningarlög.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr.:

  1. Orðin „og sanngirnisbætur“ í upphafsmálslið 8. tölul. falla brott.
  2. B-liður 8. tölul. fellur brott.
  3. Upphafsmálsliður 28. tölul. orðast svo: Málefni útlendinga, þ.m.t. brottfararstöð, að frátaldri þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd, sbr. g-lið 2. tölul. 4. gr., þar á meðal:

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.:

  1. D- og e-liður 3. tölul. falla brott.
  2. Y-liður 5. tölul. fellur brott.
  3. Í stað 7. og 8. tölul. kemur nýr töluliður, sem verður 7. tölul., svohljóðandi:

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmál, þar á meðal:

    1. Húsnæðislán.
    2. Greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga.
    3. Húsnæðissjóð.
    4. Húsaleigumál.
    5. Húsnæðisbætur.
    6. Sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ.
    7. Húsnæðissamvinnufélög og byggingarsamvinnufélög.
    8. Almennar íbúðir.
    9. Húsnæðissjálfseignarstofnanir.
    10. Húsnæðismálasjóð.
    11. Fjöleignarhús.
    12. Frístundabyggð. 
    13. Kærunefnd húsamála.
    14. Fasteignaskrá og fasteignamat.
    15. Eftirlit með mannvirkjum og gerð þeirra.
    16. Brunavarnir.
    17. Byggingarvörur.
    18. Eftirlit með öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga í mannvirkjum.
    19. Yfirfasteignamatsnefnd.
    20. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
    21. Skipulagslög.
    22. Skipulag haf- og strandsvæða.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.:

  1. H-liður 3. tölul. fellur brott.
  2. Við 3. tölul. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Innviðafélag.
  3. Við 6. tölul. bætist nýr stafliður, sem verður e-liður, svohljóðandi: Ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.
  4. Á eftir mm-lið 8. tölul. koma þrír nýir stafliðir, svohljóðandi:
    1. Markaði fyrir sýndareignir.
    1. Stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar.
    1. Verðbréfun.
  5. Á eftir e-lið 9. tölul. kemur nýr stafliður, svohljóðandi: Aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. tölul. 6. gr.:

  1. E-liður fellur brott.
  2. Við bætist nýr stafliður, sem verður f-liður, svohljóðandi: Dvalarheimili og dvalarrými.
  3. Í stað orðanna „Sérhæfðar dagdvalir“ í g-lið kemur: Málefni dagdvala.

7. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr.:

  1. Orðið „Atvinnuþróun,“ í a-lið 5. tölul. fellur brott.
  2. Á eftir h-lið 14. tölul. kemur nýr stafliður, sem verður i-liður, svohljóðandi: Skapandi greinar.

8. gr.

Á eftir h-lið 2. tölul. 10. gr. kemur nýr stafliður, sem verður i-liður, svohljóðandi: Landupplýsingar og kortagerð.

9. gr.

Forsetaúrskurður þessi, sem á sér stoð í 15. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 4. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 28. júní 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Kristrún Frostadóttir.

A deild — Útgáfudagur: 1. júlí 2026

Tengd mál