Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

9. júlí 2026

Útgáfudagur

24. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 853/2026

9. júlí 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/100 frá 15. janúar 2026 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 748/2012 og (ESB) nr. 1321/2014 að því er varðar ferlið við staðfestingu á lofthæfi, lofthæfivottorðið og tilkynningar um atvik og um leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 1321/2014, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 153/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 45 frá 9. júlí 2026, bls. 359-399.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 72. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 9. júlí 2026.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 24. júlí 2026

Tengd mál