Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fiskistofa

Málaflokkur

Fiskeldi

Undirritunardagur

26. nóvember 2025

Útgáfudagur

1. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1280/2025

26. nóvember 2025

AUGLÝSING

um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó 2026.

Samkvæmt lögum um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð, nr. 89/2019, leggur Fiskistofa á gjald tvisvar á ári 15. ágúst vegna tímabilsins 1. janúar til 30. júní og 15. febrúar vegna tímabilsins 1. júlí til 31. desember.

Gjald á hvert kílógramm slátraðs lax á árinu 2026 er kr. 41,66.

Gjald á hvert kílógramm slátraðs regnbogasilungs á árinu 2026 er kr. 20,83.

Gjöldin eru byggð á fyrirmælum sem fram koma í 2. gr. laga nr. 89/2019 ásamt breytingum með lögum nr. 129/2022 sem tóku gildi 1. janúar 2023 og samkvæmt breytingum með lögum nr. 100/2023 vegna fjárlaga fyrir árið 2024.

Fiskistofu, 26. nóvember 2025.

Björk Guðmundsdóttir fjármálastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 1. desember 2025

Tengd mál