Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Þingeyjarsveit

Málaflokkur

Vatnamál, Þingeyjarsýslur

Undirritunardagur

11. desember 2025

Útgáfudagur

29. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1479/2025

11. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir vatnsveitugjöld í Þingeyjarsveit.

Gjaldskrá fyrir vatnsveitur Þingeyjarsveitar er byggð á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004, og reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 401/2005.

1. gr. Vatnsveitugjöld.

Vatnsgjald, 0,19% af fasteignamati.

Aukavatnsgjald, 042% af fasteignamati.

2. gr. Gjalddagar vatnsveitugjalds.

Gjalddagar vatnsveitugjalds skulu vera þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist vatnsveitugjald með fasteignasköttum.

3. gr. Gildistaka.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt var af sveitarstjórn Þingeyjarsveitar og var staðfest á fundi hennar 11. desember 2025, er sett með stoð í 10. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2001, og 11. gr. reglugerðar um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 401/2005. Gjaldskráin öðlast þegar gildi og jafnframt fellur gjaldskrá fyrir vatnsgjöld í Þingeyjarsveit, nr. 1749/2024, úr gildi.

Þingeyjarsveit, 11. desember 2025.

Gerður Sigtryggsdóttir sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 29. desember 2025

Tengd mál