Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Akraneskaupstaður

Málaflokkur

Skipulagsmál, Akranes

Undirritunardagur

3. júlí 2026

Útgáfudagur

5. ágúst 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 873/2026

3. júlí 2026

AUGLÝSING

um breytingu á deiliskipulagi í Akraneskaupstað.

Suðurgata 57.

Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar 2. júlí 2026 breyting á deiliskipulagi fyrir Akratorgsreit vegna Suðurgötu 57. Breytingin felur í sér hækkun núverandi húss um eina hæð, þannig að það verði fjórar hæðir með kjallara, auk þess sem gert er ráð fyrir auknu byggingarmagni. Nýtingarhlutfall hækkar úr 1,36 í 1,78.

Jafnframt er gert ráð fyrir breyttri starfsemi í húsinu, þar sem áformað er að starfrækja hótel á efri hæðum og veitingastað á jarðhæð, ásamt fjölnotasal á 4. hæð.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Akranesi, 3. júlí 2026.

Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 5. ágúst 2026

Tengd mál