Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Málaflokkur
Reykjavík, Umferðarmál
Undirritunardagur
2. desember 2025
Útgáfudagur
16. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1372/2025
2. desember 2025
REGLUR
um bílastæðakort fyrir rekstraraðila í Reykjavíkurborg.
1. gr. Rekstraraðilakort.
Reykjavíkurborg, bílastæðasjóður, gefur út bílastæðakort, hér eftir nefnd rekstraraðilakort, til aðila með rekstur á gjaldskyldu svæði innan Reykjavíkur, í samræmi við nánari skilyrði í 2. gr. Rekstraraðili skal starfrækja starfsemi skv. atvinnugreinaflokkun ÍSAT 2008 nr. 47 eða 56.
Rekstraraðilakort veitir heimild til að leggja bifreið án endurgjalds í gjaldskylda stöðureiti innan gildissvæðis íbúakorts eins og það er skilgreint og með þeim takmörkunum sem um það gilda á hverjum tíma samkvæmt reglum um bílastæðakort íbúa, íbúakort, að undanskildu gjaldsvæði 1 þar sem það gildir ekki. Greitt er fyrir rekstraraðilakort í samræmi við gjaldskrá hverju sinni.
2. gr. Skilyrði.
Aðeins er heimilt að gefa út rekstraraðilakort til rekstraraðila sem uppfylla öll eftirfarandi skilyrði:
- Rekstraraðili skal starfrækja starfsemi skv. atvinnugreinaflokkun ÍSAT 2008 nr. 47 eða 56 innan gildissvæðis íbúakorts eins og það er skilgreint og með þeim takmörkunum sem um það gilda á hverjum tíma samkvæmt reglum um íbúakort, að undanskildu gjaldsvæði 1.
- Húsnæði rekstraraðila má ekki fylgja réttur til notkunar á bílastæði innan lóðar, hvort heldur er til einkanota eða í sameign, samkvæmt deiliskipulagi, lóðarleigusamningi, mæliblaði, lóðaruppdrætti, staðfestri eignaskiptayfirlýsingu eða skráningu í fasteignaskrá, sbr. reglur um íbúakort.
- Umsækjandi skal vera eigandi rekstursins og húsnæðis hans, eða hafa skriflega heimild frá eiganda þess til að sækja um rekstraraðilakort.
- Umsækjandi skal vera skráður eigandi eða umráðamaður ökutækis samkvæmt 4. gr., sbr. 37. tl. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Ökutæki skal bera gild íslensk skráningarmerki og skal vera heimilt að leggja á götum og almenningsbifreiðastæðum samkvæmt ákvæðum umferðarlaga og lögreglusamþykktar.
- Umsækjandi skal ekki vera í skuld við Bílastæðasjóð Reykjavíkur sem komin er til milliinnheimtu eða löginnheimtu og skal hafa að fullu greitt öll bílastæðakortagjöld frá fyrri tímabilum.
Einungis er heimilt að gefa út eitt rekstraraðilakort vegna hvers reksturs sem uppfyllir ofangreind skilyrði.
3. gr. Gildissvæði.
Hvert rekstraraðilakort gildir innan þess íbúakortasvæðis þar sem viðkomandi rekstur er staðsettur, eins og það er skilgreint á hverjum tíma sbr. reglur um íbúakort, og birt á heimasíðu Reykjavíkurborgar, sbr. þó 2. og 3. mgr.
Rekstur staðsettur innan gjaldsvæðis 1 getur ekki fengið úthlutað rekstraraðilakorti.
Handhafar rekstraraðilakorts hafa ekki heimild til að leggja gjaldfrjálst innan gjaldsvæðis 1.
Reykjavíkurborg, bílastæðasjóður, skal á vefsíðu sinni birta yfirlitsmynd yfir gildissvæði íbúakorta.
4. gr. Umsókn um rekstraraðilakort.
Sækja skal um rekstraraðilakort með rafrænum hætti á vefsíðu Reykjavíkurborgar.
Ef umsækjandi er ekki eigandi reksturs og húsnæðis samkvæmt 2. gr., skal undirritað samþykki eiganda fylgja með umsókn.
Reykjavíkurborg, bílastæðasjóður, aflar annarra nauðsynlegra upplýsinga frá umsækjanda og úr opinberum skrám, svo sem þjóðskrá, fasteignaskrá og ökutækjaskrá, eftir því sem við á og í samræmi við gildandi lög.
Úthluta skal umsækjanda korti fyrir það gildissvæði þar sem rekstur hans er. Ef rekstur umsækjanda er á mörkum tveggja gildissvæða er honum heimilt að velja á hvoru svæðanna rekstraraðilakortið gildir.
5. gr. Gildistími og notkun.
Rekstraraðilakort skulu gefin út með rafrænum hætti til að hámarki eins árs í senn, en þó aldrei lengur en heimild frá eiganda reksturs og húsnæðis ber með sér.
Rekstraraðilakort verður óvirkt þegar skilyrði fyrir útgáfu þess eru ekki lengur uppfyllt. Handhafa rekstraraðilakorts ber að tilkynna Reykjavíkurborg, bílastæðasjóði, ef skilyrði fyrir útgáfu kortsins eru ekki lengur uppfyllt vegna breyttra aðstæðna korthafa, svo sem vegna flutnings á starfsemi, sölu ökutækis eða annarra sambærilegra atvika.
6. gr. Gjaldtaka.
Fyrir útgáfu, breytingar og endurnýjun á rekstraraðilakorti skal greiða gjald samkvæmt auglýstri gjaldskrá. Gjaldið skal greitt þegar umsókn hefur verið samþykkt. Rekstraraðilakort er ekki virkjað fyrr en Reykjavíkurborg hefur móttekið greiðsluna.
7. gr. Ógilding.
Reykjavíkurborg, bílastæðasjóði, er heimilt að ógilda rekstraraðilakort ef handhafi verður uppvís að misnotkun kortsins. Reykjavíkurborg, bílastæðasjóður, getur einnig ógilt rekstraraðilakort ef sjóðnum verður kunnugt um að skilyrði fyrir veitingu rekstraraðilakorts eru ekki lengur uppfyllt, án þess að handhafi kortsins hafi tilkynnt um það í samræmi við 5. gr. Handhafi korts sem hefur verið ógilt í samræmi við ákvæði þetta getur ekki fengið útgefið nýtt kort í tvö ár frá ógildingu útgefins korts.
Ef mánaðarlegar greiðslur eru ekki inntar af hendi er Reykjavíkurborg, bílastæðasjóði, heimilt að fella rekstraraðilakort úr gildi.
Reykjavíkurborg skal tilkynna handhafa rekstraraðilakorts um ógildingu korts samkvæmt ofangreindu.
8. gr. Gildistaka og lagastoð.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 2. mgr. 86. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, hafa hlotið samþykki lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og voru samþykktar á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 19. nóvember 2025 og á fundi borgarráðs 27. nóvember 2025 taka gildi við birtingu. Reglur þessar eru tímabundnar og gilda til 31. desember 2027.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 2. desember 2025.
Heiða Björg Hilmisdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 16. desember 2025