Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
2. júlí 2024
Útgáfudagur
17. júlí 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 872/2024
2. júlí 2024
REGLUR
um sniðmát fyrir gagnaskil fjármálasamsteypa um samþjöppun áhættu og viðskipti innan samsteypu.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um fjármálasamsteypur, sbr. 3. gr. laga nr. 61/2017 um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.
2. gr. Innleiðing reglugerðar.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2454 frá 14. desember 2022 um tæknilega framkvæmdarstaðla fyrir beitingu tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2002/87/EB að því er varðar skýrslugjöf vegna eftirlits með samþjöppun áhættu og viðskiptum innan samstæðu, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 159/2023 frá 13. júní 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 34, frá 25. apríl 2024, bls. 316-371.
3. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 3. mgr. 32. gr. laga nr. 61/2017 um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum, öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 2. júlí 2024.
Ásgeir Jónsson | Rannveig Júníusdóttir | |
seðlabankastjóri. | framkvæmdastjóri. |
B deild - Útgáfud.: 17. júlí 2024